Viðskipti innlent

LSR vill halda rekstri Exista gangandi

Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins (LSR) vill halda starfsemi Exista gangandi til þess að hámarka endurheimtur af kröfum sínum á hendur félaginu. Þetta kemur fram á vefsíðu Landssamtaka lífeyrissjóða. LSR vill þó draga verulega úr rekstrarkostnaði.

„Það mat liggur fyrir að líklegasta leiðin til að skila kröfuhöfum mestum árangri sé að leita leiða til að halda starfrækslu félagsins áfram og bíða betri tíma til að hámarka verðmæti eigna," segir í greininni frá LSR á vefsíðunni. „ Af þessu leiðir að ýmsir kröfuhafar og ráðgjafar sem að málinu hafa komið telja rétt að skoða stöðu félagsins til hlítar og hvort ekki séu meiri möguleikar á endurheimt krafna með áframhaldandi starfrækslu þess þó svo að það verði mögulega með mjög breyttu sniði."

Ennfremur kemur fram að síðustu vikur hafi fjölmiðlar rætt nokkuð um fjárhagslega stöðu Exista. „Forsvarsmenn LSR hafa í góðu samstarfi við aðra kröfuhafa, innlenda og erlenda, verið að skoða málefni félagsins. Í þeirri vinnu hefur LSR fylgt þeim markmiðum sem að framan er lýst um endurheimt krafna og réttmætt mat á stöðu félagsins og kröfuhafa þess. Þessari vinnu er ekki lokið og af hálfu LSR og annarra lífeyrissjóða sem að málinu hafa komið, hefur ekki verið lokað á neinar leiðir."

Þá segir að líkt og komið hefur fram í fjölmiðlum eru skuldir Existu verulegar en á móti eru verðmætar og mikilvægar eignir, en þær eru helstar Síminn, VÍS, Lífís og Lýsing. Margt sé þó óljóst um stöðu félagsins vegna óuppgerðra samninga þess og annarra flókinna tengsla þess við gömlu bankana.

„Allir aðilar hafa verið sammála um að skera þurfi verulega niður rekstrarkostnað og gera margs konar breytingar á starfsemi félagsins. Að lokinni endurskipulagningu og aukinni aðkomu kröfuhafa að félaginu yrði kosin ný stjórn sem ræki félagið áfram með það eitt að markmiði að hámarka endurgreiðslur lána," segir einnig í greininni.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×