Viðskipti innlent

Aldrei mælst jafn mikill þjónustujöfnuður

Þjónustujöfnuðurinn var jákvæður um 7,2 milljarða króna á öðrum fjórðungi þessa árs samanborið við 10,6 milljarða króna halla á sama ársfjórðungi í fyrra, samkvæmt tölum sem Hagstofan birti í morgun. Samkvæmt Morgunkorni Íslandsbanka hefur aldrei áður mælst jafn mikill afgangur af þjónustuviðskiptum við útlönd á öðrum ársfjórðungi.

Síðast mældist afgangur á öðrum ársfjórðungi af þessum hluta viðskiptajafnaðarins árið 1998. Sýna tölurnar áhrif samdráttarins á innlendum markaði og þær miklu breytingar í utanríkisviðskiptum sem gjaldeyris- og bankakreppan hefur kallað á.



Mikil aukning í útfluttri þjónustu



Flutt var út þjónusta fyrir 70,4 milljarða á öðrum fjórðungi í ár samanborið við 43,1 milljarða á sama tíma í fyrra. Skýrist aukningin aðallega af lækkun gengis krónunnar en á föstu gengi jukust þessar útflutningstekjur á tímabilinu um 18,3%.

Aukningin á föstu gengi er aðallega vegna aukinna gjaldeyristekna af ferðalögum en á föstu gengi jukust þær um 53,4% á tímabilinu og námu 19,6 milljörðum á öðrum ársfjórðungi.



Samdráttur í innfluttri þjónustu

Flutt var inn þjónusta fyrir 63,2 milljarða á öðrum fjórðungi ársins samanborið við 53,8 milljarða á sama tímabili í fyrra. Á föstu gengi dróst þessi innflutningur saman um 27,6% á tímabilinu og má þar greina áhrif kreppunnar, en samdrátturinn er aðallega í gjöldum vegna ferðalaga sem drógust saman um 58,5% á föstu gengi á tímabilinu.

Sést þar að Íslendingar hafa verulega dregið úr ferðalögum sínum erlendis, líkt og lesa hefur mátt úr tölum um brottfarir um Leifsstöð og erlenda kortaveltu Íslendinga.



25,7 milljarða króna afgangur af vöru- og þjónustujöfnuði


Vöruskiptin voru á öðrum ársfjórðungi jákvæð um 18,4 milljarða króna samanborið við halla upp á 0,8 milljarða á sama tíma í fyrra.

Samkvæmt þessu var afgangur á vöru- og þjónustuviðskiptum við útlönd upp á 25,7 milljarða á öðrum fjórðungi þessa árs samanborið við halla á sama tíma í fyrra upp á 11,4 milljarða. Það hefur því orðið umtalsverður viðsnúningur í utanríkisviðskiptum á tímabilinu eða sveifla upp á 37,1 milljarða.

Rétt er þó að halda til haga að um bráðabirgðatölur um þjónustujöfnuð er að ræða og mun Hagstofan endurskoða tölurnar eftir því sem efni standa til.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×