Gengi krónunnar allt of lágt Gunnar Örn Jónsson skrifar 13. ágúst 2009 13:07
Gengi krónunnar er mun lægra en peningastefnunefnd Seðlabankans telur viðunandi. Þeim mun lengur sem gengi krónunnar er svona lágt þeim mun líklegra er að það komi fram í aukinni verðbólgu. Ljóst er að nefndin vill sjá krónuna styrkjast talsvert. Seðlabankinn gerir ráð fyrir því í sínum spám að gengi krónunnar á fjórða ársfjórðungi verði um 176 krónur gagnvart evru en nú er krónan 180 krónur gagnvart evrunni. Þetta kemur fram í morgunkorni Greiningardeildar Íslandsbanka. Seðlabankinn gerir ráð fyrir því að gengi krónunnar haldi áfram að hækka fram á næsta ár og verði komið í 160 krónur í lok næsta árs. Spáir bankinn því að verðbólgan komi til með að hjaðna nokkuð hratt samhliða þessu og reiknar með því að verðbólgan verði komin í 2,3% í lok næsta árs. Útilokar bankinn ekki verðhjöðnun á næstu misserum sérstaklega ef krónan kemur til með að styrkjast meira en reiknað er með í spá Seðlabankans. Mikið framboð er af lausu fé og því eru innlánsvextir bankans meira ráðandi en stýrivextirnir. Vextir á viðskiptareikningum í Seðlabankanum eru 9,5% og ákvað peningastefnunefndin að halda þeim einnig óbreyttum í dag líkt og stýrivötum sínum. Vextir innlána hjá viðskiptabönkunum hafa verið lækkaðir hratt undanfarið og eru þeir nú umtalsvert undir vöxtum Seðlabankans. Lítil viðbrögð á fjármálamarkaði í ljósi óbreyttra stýrivaxta Lítil viðbrögð hafa verið á fjármálamarkaði við aðgerðir og orðum Seðlabankans í morgun. Gengi krónunnar hefur lækkað um 0,25% í afar litlum viðskiptum á millibankarkaði með gjaldeyri. Litlar ávöxtunarkröfubreytingar hafa verið á skuldabréfamarkaði en viðskipti þar hafa verið lífleg engu að síður. Aðgerðir og orð bankans virðast því hafa verið í takti við væntingar en Greiningardeildir stóru viðskiptabankanna þriggja höfðu allar spáð sömu niðurstöðum og raunin varð hjá peningastefnunefnd Seðlabankans.
Mest lesið Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Viðskipti innlent Möguleg endalok ferilsins: Hræðist að tapa fyrir eiginkonunni Atvinnulíf Leitað að fyrirmyndum í öryggismálum fyrirtækja Samstarf Vara við afleiðingunum Viðskipti innlent Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Viðskipti innlent Innkalla hrísgrjón vegna skordýraleifa Neytendur Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Viðskipti innlent Þegar allt er að fara fjandans til… Atvinnulíf Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Viðskipti innlent Skordýraeitur á Pinkids eplum í öskju Neytendur Fleiri fréttir Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Vara við afleiðingunum NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Hermann framkvæmdastjóri Fálkans Ísmars Telur Þórð hafa misskilið en sama tala varð niðurstaðan Fjórar af hverjum fimm íbúðum seljast undir auglýstu verði: „Við höfum miklar áhyggjur“ Bundu nær allan koltvísýring og brennistein á Hellisheiði Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Íslandshótelum Ráðin markaðsstjóri Prís Saka Símann um undirboð með áskriftarpakka Opna nýtt kaffihús í Listasafni Reykjavíkur Svona er umhorfs í endurbættri fríhöfn Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Atli Þór til Almannaróms Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Færri tengifarþegar en fleiri komu til Íslands Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Sjá meira