Atvinnuleysi 6% á þriðja ársfjórðungi 14. október 2009 09:09
Á þriðja ársfjórðungi 2009 voru að meðaltali 10.900 manns án vinnu og í atvinnuleit eða 6% vinnuaflsins. Atvinnuleysi mældist 6,5% hjá körlum og 5,4% hjá konum. Þegar litið er til aldurs var atvinnuleysið mest meðal fólks á aldrinum 16-24 ára, eða 12,3%. Frá þriðja ársfjórðungi 2008 til annars ársfjórðungs 2009 fjölgaði atvinnulausum um 6.100 manns. Þetta kemur fram í vinnumatrkaðskönnun sem birt er á vefsíðu Hagastofunnar. Þar segir að á þriðja ársfjórðungi 2009 var atvinnuleysi 7,1% á höfuðborgarsvæðinu en 4% utan þess. Á þriðja ársfjórðungi 2009 höfðu 4.100 atvinnulausir annað hvort fundið vinnu sem hefst síðar eða leitað í tvo mánuði eða skemur sem var svipaður fjöldi og árið áður. Þeim sem höfðu leitað að vinnu í 3 mánuði eða lengur fjölgaði úr 700 í 6.800 frá þriðja ársfjórðungi 2008 til þriðja ársfjórðungs 2009. Atvinnulausir teljast þeir sem ekki hafa atvinnu í viðmiðunarviku könnunarinnar, eru að leita að vinnu og geta hafið störf innan tveggja vikna eða hafa fengið vinnu sem hefst innan 3 mánaða. Fjöldi starfandi á þriðja ársfjórðungi 2009 var 171.500 manns og fækkaði um 12.300 frá sama tíma ári áður. Á vinnumarkaði voru alls 182.500 manns sem jafngildir 82,1% atvinnuþátttöku. Atvinnuþátttaka karla var 85,8% og kvenna 78,2%. Til þeirra sem eru á vinnumarkaði teljast bæði þeir sem eru starfandi og atvinnulausir. Fólk telst vera starfandi ef það hefur unnið eina klukkustund eða meira í viðmiðunarviku könnunar eða verið fjarverandi frá starfi sem það gegnir að öllu jöfnu. Á þriðja ársfjórðungi 2008 voru alls 188.500 á vinnumarkaði og atvinnuþátttaka mældist 83,7%. Atvinnuþátttaka karla var 88,2% og kvenna 78,9%. Á þriðja ársfjórðungi 2009 var meðalfjöldi vinnustunda 40,9 klst. hjá þeim sem voru við vinnu í viðmiðunarvikunni, 45 klst. hjá körlum en 35,9 klst. hjá konum. Meðalfjöldi vinnustunda hjá þeim sem voru í fullu starfi var 45,3 klst. en 23,9 klst. hjá þeim sem voru í hlutastarfi. Á þriðja ársfjórðungi 2008 var meðalfjöldi vinnustunda 43,6 klst., 48,2 klst. hjá körlum en 37,7 klst. hjá konum. Þeir sem voru í fullu starfi unnu 47,1 klst. að jafnaði en þeir sem voru í hlutastarfi unnu að jafnaði 25,4 klst.
Mest lesið Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira