Afli íslenskra skipa jókst um 18,5% milli mánaða 14. október 2009 09:13
Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum septembermánuði, metinn á föstu verði, var 18,5% meiri en í september 2008. Það sem af er árinu hefur aflinn aukist um 6,9% miðað við sama tímabil 2008, sé hann metinn á föstu verði. Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að aflinn í september 2009 var 77.392 tonn samanborið við 68.052 tonn í sama mánuði árið áður. Botnfiskafli jókst um rúm 4.000 tonn frá september 2008 og nam tæpum 36.000 tonnum. Þar af var þorskaflinn tæp 14.000 tonn, sem er um 4.000 tonnum meira en árið áður. Ýsuaflinn nam rúmum 6.000 tonnum sem er um 1.600 tonnum minni afli en í september 2008. Ufsaaflinn stóð nokkurn veginn í stað á milli ára og nam tæpum 5.000 tonnum en rúm 5.000 tonn veiddust af karfa, sem er um 700 tonnum meiri afli en í september 2008. Afli uppsjávartegunda nam rúmum 38.000 tonnum sem er um 5.000 tonna aukning frá því í september 2008. Síldaraflinn nam rúmum 32.000 tonnum og jókst um 5.500 tonn. Um 4.000 tonn veiddust af makríl, sem er tæpum 2.000 tonnum minni afli en í september 2008. Flatfiskaflinn var 2.665 tonn í september og jókst um 747 tonn frá fyrra ári. Skel- og krabbadýraafli nam 907 tonnum samanborið við um 1.500 tonna afla í september 2008. Afli á föstu verði er reiknaður út til þess að finna breytingu á verðmæti heildaraflans að gefinni þeirri forsendu að verðhlutföll milli einstakra fisktegunda séu þau sömu og á ákveðnu viðmiðunarári sem hér er árið 2007. Hér er því um að ræða hliðstæðu við umreikning á afla yfir í þorskígildi. Aflinn í tonnum sýnir hins vegar magn aflans án tillits til þess að fisktegundir eru misjafnlega verðmætar.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Sjá meira