Leigusamningum fjölgaði um 55% milli ára 14. október 2009 11:55
Í heild hefur leigusamningum fjölgað um 55% í ár m.v. árið í fyrra. Þessi aukning er í takt við þá þróun sem hefur verið á árinu og lýsir hún aukinni sókn í leiguhúsnæði. Greining Íslandsbanka fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar segir að á fyrstu níu mánuðum ársins höfðu alls 8.333 leigusamningum með íbúðarhúsnæði verið þinglýst samanborið við 5.369 á sama tímabili fyrir ári. Þetta jafngildir 55% aukningu á milli ára. Það er Fasteignaskrá Íslands sem tekur saman þessi gögn og birti nýverið. Alls voru þinglýstir 1.518 leigusamningar nú í septembermánuði sem eru 10,3% fleiri samningar en gerðir voru á sama mánuði í fyrra. Í ár hafa mun fleiri leigusamningum verið þinglýst með húsnæði en kaupsamningum á höfuðborgarsvæðinu og ljóst er að minna er um kaup og sölu íbúða en á móti hefur leigumarkaðurinn stækkað. Jafnframt hefur verulega dregið úr fjölda skráðra íbúða sem sýnir að minna er um nýbyggingar. Á árunum 2004-2008 voru að meðaltali 3.642 íbúðir skráðar fokheldar og fullbúnar á ári. Á fyrstu níu mánuðum þessa árs hafa þær einungis verið 458 sem eru um 84% fækkun frá sama tímabili í fyrra. Í því efnahagsumhverfi sem heimilin búa við um þessar mundir, þar sem atvinnuleysi er vaxandi, kaupmáttur launa að dragast saman og húsnæðisverð að lækka kemur ekki á óvart að fleiri taka þann kost að leigja fremur en að láta fé sitt undir í íbúðarkaup. Fækkun á skráðum íbúðum, minni velta á fasteignamarkaði og aukin sókn í leiguhúsnæði skýrist því án efa af efnahagsástandinu. Hér má jafnframt taka það með í reikninginn að stór hluti þeirra erlendu aðila sem hingað streymdu í uppsveiflunni hefur horfið af landi brott en þeir voru umfangsmiklir á leigumarkaðnum fyrir bankahrunið.
Mest lesið Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Sjá meira