Viðskipti innlent

Hagar ljúka endurfjármögnun

Hagar hafa lokið endurfjármögnun félagsins í samstarfi við Landsbankann og Kaupþing samkvæmt tilkynningu sem þeir sendu frá sér. Þar kemur ennfremur fram að Hagar hafi greitt greitt að fullu skuldabréfaflokk félagsins, upphaflega 7 milljarða króna en gjalddaginn var 19. október 2007.

 

Lesa má tilkynninguna í heild hér fyrir neðan:

 

Hagar hf. hafa lokið endurfjármögnun félagsins í samstarfið við NBI hf. og Nýja Kaupþing banka hf. Hagar hafa nú greitt að fullu skuldabréfaflokk félagsins, sem var á gjalddaga 19. október 2009, upphaflega að fjárhæð 7 milljarðar króna.

 

Hagar eru eina fyrirtækið sem hefur greitt upp að fullu skuldabréfaflokk, sem skráður var í Kauphöll Íslands, eftir hrun íslenska bankakerfisins síðastliðið haust.

Endurfjármögnun Haga er jákvæð fyrir íslenskt atvinnulíf og gefur góð fyrirheit um endurreisn íslenskra banka.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×