MIT velur HR til að halda ráðstefnu 30. maí 2009 19:18 MBA í Háskólanum í Reykjavík mun halda eina stærstu frumkvöðlaráðstefnu heims á næsta ári. Mynd/ E. Ól.
MIT háskólinn í Bandaríkjunum hefur valið MBA í Háskólanum í Reykjavík úr hópi 20 umsækjenda til að halda eina stærstu frumkvöðlaráðstefnu heims í mars á næsta ári. Ráðstefnan heitir MIT Global Start-up Workshop og dregur til sín um 500 frumkvöðla, fjárfesta, stjórnmálamenn, háskólakennara og nemendur alls staðar að úr heiminum. Aðalsteinn Leifsson, forstöðumaður MBA námsins, tilkynnti þetta á útskrift MBA-nema frá Háskólanum í Reykjavík í dag. Hann segir þetta afskaplega mikinn heiður fyrir HR og að margir virtir skólar hefðu verið á meðal umsækjenda. „Að auki vorum við að ganga frá ráðningu á prófessor í nýsköpun frá Harvard háskóla, dr. Daniel Isenberg," segir Aðalsteinn í tilkynningu sem HR sendi frá sér vegna málsins. „Í þeim kringumstæðum sem íslenskt samfélag og íslenskt viðskiptalíf er í núna er gríðarlega mikilvægt að láta ekki deigan síga heldur þvert á móti að blása til sóknar með sköpun nýrra fyrirtækja og nýrra starfa. Við ætlum svo sannarlega að láta til okkar taka í þeirri sókn," bætir hann við. Alls útskrifuðust 55 nemendur með MBA-gráðu frá HR í dag. Það má með sanni segja að þetta hafi verið óvenjulegur árgangur, eða öllu heldur óvenju frjósamur árgangur. Frá fyrsta skóladegi og fram að þeim síðasta fæddust 18 börn í hópnum. Að auki er von á þremur börnum til viðbótar í heiminn í sumar. Aðalsteinn Leifsson segir að þessi frjósemi sé góðs viti enda verði næsta ár tileinkað nýsköpun í MBA náminu.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Sjá meira