Segir Seðlabankann vera að herða gjaldeyrishöftin 29. maí 2009 12:47 „
Fljótt á litið virðist Seðlabankinn fremur vera að herða á gjaldeyrishöftunum en skýra túlkun þeirra. Áhrif þessa verða væntanlega þau að gjaldeyrisútflæði vegna vaxtagreiðslna verður töluvert minna það sem eftir er árs en útlit var fyrir." Þetta segir í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka þar sem fjallað er um minnisblað sem Seðlabankinn hefur birt á heimasíðu sinni um framkvæmd á sölu gjaldeyris í samræmi við reglur þær um gjaldeyrishöft sem settar voru í desember síðastliðnum. Greiningin segir að af orðanna hljóðan í minnisblaðinu má ætla að hlutverk þess sé fyrst og fremst að eyða vafa sem upp hafi komið um túlkun 8. greinar reglnanna. Til að mynda eru í minnisblaðinu tekin af öll tvímæli um að ekki er leyfilegt að kaupa gjaldeyri fyrir vaxtagreiðslur af erlendum krónubréfum. Þá er aðeins heimilt að kaupa gjaldeyri fyrir áfallnar vaxtatekjur af skuldabréfum frá því þau voru keypt, en skilningur margra á reglunum var sá að öllum vaxtagreiðslum mætti skipta í gjaldeyri þótt bréfin hefðu verið keypt skömmu fyrir vaxtagjalddaga. Gengishagnað er einnig óheimilt að yfirfæra yfir í erlendan gjaldeyri, en töluverð óvissa hefur verið um þetta atriði meðal fjárfesta. Svo virðist raunar sem fjárfestar hafi ekki verið einir um að velkjast í vafa um túlkun gjaldeyrisreglna Seðlabankans. Í Peningamálum, sem út komu fyrir tæpum mánuði síðan, er fjallað um áhrif stýrivaxta á gjaldeyrisútflæði vegna vaxtagreiðslna. Þar segir (bls. 22): „Vaxtalækkun getur minnkað framtíðarútstreymi vegna nýrra skuldabréfa (einkum til skamms tíma). Hins vegar gæti hún aukið tímabundið gjaldeyrisútstreymi vegna vaxtagreiðslna af útistandandi bréfum. Lækki vextir umfram væntingar myndast gengishagnaður af útistandandi skuldabréfum sem heimilt er samkvæmt reglum að flytja úr landi. Því er ekki sjálfgefið að veruleg vaxtalækkun minnki útflæði til skamms tíma þótt hún geri það til langs tíma litið." Af þessum texta má ráða að Seðlabankamenn hafi, a.m.k. sumir hverjir, skilið reglurnar með þeim hætti að heimilt væri að kaupa gjaldeyri fyrir gengishagnað.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Sjá meira