Ágúst kaus í umboði Karenar Millen 16. maí 2009 11:58 Frá aðalfundinum örlagaríka.
Fyrrum stjórnarformaður Byrs, Ágúst Ármann og faðir Magnúsar Ármanns, sem var stærsti stofnfjáreigandi í sparisjóðnum áður en Landsbankinn tók hlut hans yfir, sendi frá sér yfirlýsingu nú fyrir stuttu þar sem hann furða sig á ummælum Sveins Margeirssonar, nýkjörins stjórnarmanns í Byr. Í yfirlýsingu segist Ágúst furða sig á ósvifnum ummælum Sveins Margeirssonar sem hóti að fara dómsstólaleiðina verði ekki upplýst hver átti hlutinn sem Ágúst fór með umboð fyrir. Þá furðar Ágúst sig ennfremur á flutningi fjölmiðla sem hann sakar um að birta rakalausar aðdróttanir. Ágúst segist vera stofnfjáreigandi og hafi því haft fullan rétt á að nýta atkvæðisrétt sinn. Þá tók hann að sér umboð fyrir Karen Millen og hennar fjölskyldu og greiddi atkvæði fyrir þeirra hönd. „Umræddir aðilar eru löglegir eigendur stofnfjárhlutanna...," segir Ágúst í yfirlýsingu sinni. Karen sendir einnig frá sér yfirlýsingu vegna málsins. þar segir hún orðrétt: „Staðreyndir málsins eru einfaldlega þær að ég og fjölskylda mín höfum um árabil átt stofnfjárhluti í Byr og forvera hans. Við báðum Ágúst Ármann að mæta fyrir okkar hönd á aðalfund Byrs og greiða atkvæði fyrir okkar hönd. Bréfin hafa verið í vörslu Kaupþings í Lúxemborg og veitti bankinn því Ágústi umboð til að fara með atkvæðisrétt skv. fyrirmælum okkar." Meðfylgjandi eru yfirlýsingar þeirra beggja. Athugasemd frá Ágústi Ármann vegna fréttaflutnings um málefni Byrs: Í fréttum RÚV og Stöðvar 2 í gær var þátttaka mín á aðalfundi Byrs gerð tortryggileg. Því er ranglega haldið fram að ég hafi tryggt mér kosningarrétt á aðalfundi sparisjóðs Byrs með því að framvísa umboði frá Kaupþingi Luxemburg. Hið rétta er að ég er stofnfjáreigandi í sparisjóði Byr og hef því fullan rétt á að nýta atkvæðisrétt minn á aðalfundi eins og aðrir stofnfjáreigendur. Einnig tók ég að mér að fara með umboð fyrir tiltekna erlenda eigendur stofnfjárhluta í Byr og greiða atkvæði fyrir þeirra hönd. Umræddir aðilar eru löglegir eigendur stofnfjárhlutanna og fylgir yfirlýsing þeirra hér með, sem ég var beðinn um að koma á framfæri. Ég furða mig á framgöngu og ósvífnum ummælum Sveins Margeirssonar, stjórnarmanns í Byr, sem hótar að „fara dómstólaleiðina" og „kæra til lögreglu". Ennfremur furða ég mig á fjölmiðlum sem birta rakalausar aðdróttanir í þessu veru án þess að kynna sér staðreyndir. Ágúst Ármann _______________________________________ Yfirlýsing frá Karen Millen: Athygli mín hefur verið vakin á því að einn stjórnarmanna í Byr, Sveinn Margeirsson, láti að því liggja í mörgum íslenskum fjölmiðlum að eitthvað hafi verið athugunarvert við kosningu fyrir mína hönd á aðalfundi Byrs, sem haldinn var sl. miðvikudag. Staðreyndir málsins eru einfaldlega þær að ég og fjölskylda mín höfum um árabil átt stofnfjárhluti í Byr og forvera hans. Við báðum Ágúst Ármann að mæta fyrir okkar hönd á aðalfund Byrs og greiða atkvæði fyrir okkar hönd. Bréfin hafa verið í vörslu Kaupþings í Lúxemborg og veitti bankinn því Ágústi umboð til að fara með atkvæðisrétt skv. fyrirmælum okkar. Mér er fyrirmunað að skilja hvers vegna stjórnarmaðurinn, Sveinn Margeirsson, kýs að gera þetta tortryggilegt. Það er óviðunandi að stjórnarmaður í Byr gangi fram með þessum hætti gegn löglegum eigendum stofnfjárhluta í Byr, sem hafa rétt til að nýta atkvæðisrétt sinn á aðalfundi eins og þeir kjósa. Ég harma ennfremur að vegið sé að heiðri Ágústar Ármann með þessum hætti. Karen Millen.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Sjá meira