Tekjuafgangur LSS minnkar um helming 27. ágúst 2009 08:20
Afkoma Lánasjóðs sveitarfélaga (LSS) á fyrri hluta ársins 2009 var í samræmi við væntingar og er tekjuafgangur 586 milljónir kr. á móti 1.163 milljónir kr. fyrir sama tímabil fyrra árs. Útlán sem fjármögnuð eru með eigin fé eru verðtryggð og þar sem hækkun vísitölu á fyrri hluta árs er lægri en á sama tímabili í fyrra skýrir það lægri afkomu nú samanborið við 2008. Vextir af þeim lánum hafa verið óbreyttir frá síðasta hausti 4,25%. Einnig var ávöxtun á lausu fé lægri en á sama tímabili á síðasta ári, en er þó góð miðað við efnahagsástand. Á tímabilinu var skuldabréf útgefið af SPRON fært að fullu niður í bókum sjóðsins. Sjóðurinn mun krefja skilanefnd um greiðslu skuldarinnar en óvíst er með heimtur. Sama á við um afleiðuskuld Glitnis banka við sjóðinn sem sjóðurinn hefur lýst í þrotabú bankans. Útborguð langtímalán á fyrri hluta ársins 2009 voru 4,9 milljarða kr., samanborið við 6,3 milljarða kr. á sama tíma árið 2008. Vanskil eru engin og hefur sjóðurinn ekki tapað útláni frá því að hann hóf starfsemi árið 1967. Á tímabilinu gaf sjóðurinn út skuldabréf að fjárhæð 6,5 milljarða kr. á innlendum skuldabréfamarkaði. Eigið fé í lok tímabilsins var 11,9 milljarða kr. á móti 11,2 milljörðum kr. um mitt ár 2008. Eiginfjárhlutfall sjóðsins var í lok tímabilsins 62% samkvæmt hinum nýju Basel II reglum. Gert er ráð fyrir að hagnaður lánasjóðsins fyrir árið í heild verði svipaður því sem var síðastliðin tvö ár, en það mun aðallega ráðast af hækkun verðlags það sem eftir lifir árs og þróun skammtímavaxta.
Mest lesið Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira