Samkomulag um greiðslujöfnun gengistryggðra lána 8. apríl 2009 15:25 Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra
Viðskiptaráðuneytið, Samtök fjármálafyrirtækja og skilanefnd SPRON hafa í dag gert samkomulag um að tryggja greiðslujöfnun gengistryggðra fasteignaveðlána einstaklinga. Samhliða því gera Samtök fjármálafyrirtækja, Landssamtök lífeyrissjóða, skilanefnd SPRON og Íbúðalánasjóður með sér samkomulag um samþykki síðari veðhafa. Markmið samkomulagsins er að tryggja þau áform ríkisstjórnarinnar, að lækka greiðslubyrði á myntkörfulánum þannig að lántekendur geti staðið í skilum, án þess þó að grípa til afskrifta úr bankakerfinu og/eða verulegs kostnaðar úr ríkissjóði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Viðskiptaráðuneytinu. „Þetta eru svipuð úrræði og eru í boði fyrir lántakendur verðtryggðra fasteignalána og því sanngirni gætt á milli lántakenda eins og kostur er, en þó er tekið sérstakt tillit til óvenjulegra aðstæðna gengistryggðra lána. Samkvæmt samkomulaginu skulu lánveitendur gengistryggðra fasteignaveðlána bjóða lántökum upp á greiðslujöfnun. Með greiðslujöfnun er greiðslubyrði af gengistryggðum lánum látin fylgja þróun tekna og atvinnustigs (þ.e. greiðsla tekur mið af breytingu á greiðslujöfnunarvísitölu Hagstofu Íslands í hverjum mánuði) í stað gengis gjaldmiðla," segir í tilkynningunni. „Lántaki gerir samning við lánveitanda um að greiða af gengistryggðu veðláni miðað við framreiknað greiðslumark, sem miðast við afborgun af höfuðstól og vexti sbr. greiðslubyrði lántaka eins og hún var 2. maí 2008 (hafi lánið verið tekið fyrir þann tíma en hafi lánið verið tekið eftir 2. maí 2008 miðast greiðslumarkið við fyrsta reglulega gjalddaga eftir lántöku). Mismunur þess sem lántaki greiðir samkvæmt greiðslujöfnun og þess sem hann hefði átt að greiða samkvæmt láninu færist til hækkunar á höfuðstól skuldarinnar og við bætast gjalddagar á upprunalegt lán og lengja þannig lánstímann. Skilmálabreyting láns vegna greiðslujöfnunar skal vera lántaka að kostnaðarlausu. Samkomulagið hindrar ekki að fjármálafyrirtæki geti veitt viðskiptavinum sínum frekari greiðsluerfiðleikaúrræði og kemur greiðslujöfnun þessi, eftir atvikum, til viðbótar öðrum greiðsluerfiðleikaúrræðum sem lántaki kann að eiga rétt á lögum samkvæmt. Lántaki getur hvenær sem er sagt upp samningi um greiðslujöfnun. Gildistími samkomulagsins er til ársloka árið 2012. Samhliða undirritun samkomulagsins verða felld úr gildi tilmæli ríkisstjórnar Íslands frá því í október 2008 um að frystar verði afborganir skuldara á myntkörfulánum."
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Sjá meira