Verðbólgan enn langmest á Íslandi en fer lækkandi 16. október 2009 11:30
Verðbólgan á Íslandi fer úr 16,0% í ágúst í 15,3% í september og lækkar því um 0,7 prósentustig milli mánaða samkvæmt samræmdri vísitölu neysluverðs. Innan evrópska efnahagssvæðisins er verðbólgan langmest hér á landi. Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að næstmest mælist verðbólgan Rúmeníu (4,9%), svo í Ungverjalandi (4,8%) og þar á eftir Póllandi (4,0%). Það var Hagstofa Evrópusambandsins sem birti tölur um þetta í gær. Þrátt fyrir að verðbólgan hér á landi sé mjög mikil þá hefur hún lækkað samfellt frá því hún náði hámarki í 21,9% í janúar síðastliðnum. Að meðaltali er verðbólgan nú um 0,3% meðal ríkja EES en verðhjöðnun er að meðaltali í ríkum evrusvæðisins. Þar hefur samræmd vísitala neysluverðs lækkað um 0,3% á síðustu tólf mánuðum. Flest ríki innan evrusvæðisins eru nú að upplifa verðhjöðnun. Verðhjöðnun fer gjarnan saman við samdrátt og vaxandi atvinnuleysi líkt og verið hefur víða í Evrópu undanfarið. Þannig er verðhjöðnunin mest 3,0% á Írlandi um þessar mundir en samdrátturinn í landsframleiðslu hefur verið þar mikill undanfarið og atvinnuleysi farið hratt vaxandi. Stærsti munur samræmdrar vísitölu neysluverðs og þeirrar vísitölu sem hér á landi er almennt notuð sem mælikvarði á verðbólgu, er að íbúðaverð er ekki tekið beint inn í samræmdu vísitöluna. Íbúðaverð hefur lækkað nokkuð undanfarið og mælist verðbólgan því hærri samkvæmt samræmdri vísitölu neysluverðs en hinni hefðbundnu vísitölu neysluverðs. Samkvæmt þeirri síðarnefndu mældist verðbólgan í ágúst 10,9% eða 5,1 prósentustigum lægri en samkvæmt samræmdri vísitölu neysluverðs.
Mest lesið Hvernig fæ ég unglingana mína til að fara betur með peninga? Viðskipti innlent Meirihluti í SA andvígur ESB aðild Viðskipti innlent Airpods allt að 40 prósent dýrari hérlendis Neytendur Valsstelpa í lyfjabyltingu: „Ég var alltaf svolítið skrýtin blanda“ Atvinnulíf Vélfag stefnir ríkinu Viðskipti innlent Syndis kaupir sænskt fyrirtæki Viðskipti innlent Framtíð hljóðsins er lent á Íslandi Samstarf Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Tveir nýir stjórnendur hjá Símanum Viðskipti innlent Davíð Tómas ráðinn framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hvernig fæ ég unglingana mína til að fara betur með peninga? Vélfag stefnir ríkinu Meirihluti í SA andvígur ESB aðild Ráðinn nýr tækni- og þjónustustjóri Advania á Akureyri Syndis kaupir sænskt fyrirtæki Tveir nýir stjórnendur hjá Símanum Jóhann Páll hættir við þátttöku á haustfundi SVEIT Heimavöllur Aftureldingar kenndur við rafmyntafyrirtæki Ráðinn markaðsstjóri Emmessíss Hörður og Svala endurvekja Macland Hyggja á opnun verslunar á Höfn á næsta ári Litla kaffistofan verði nýtt fyrir norðurljósaferðir Endurbyggja gömul hús úr miðbæ Reykjavíkur á Selfossi Arnar og Aron Elí til Reita Eftirlitið veður í Veðurstofuna Eldgosin við Grindavík höfðu mikil áhrif á neikvæða afkomu hins opinbera Leitin skili tekjum í ríkissjóð þó það finnist ekki olía Langþreytt á fasteignakeðjum sem slitna og ætlar aldrei aftur að flytja Vara við díoxíni í Landnámseggjum Slá milljarða lán til að fjármagna jarð- og sæstrengi Laganemar bjóða leigjendum áfram upp á fría ráðgjöf Heiður Anna nýr framkvæmdastjóri FS Tekur við stöðu framkvæmdastjóra Landmarks fasteignamiðlunar Olíuleit geti skipt sköpum fyrir framtíð þjóðarinnar Edda Hermanns nýr forstjóri Lyfja og heilsu Djúpstæð vonbrigði þegar margra eigna keðjur slitna Andri Sævar og Svava til Daga Tveir nýir vörumerkjastjórar til Ölgerðarinnar Tekur við sem framkvæmdastjóri verkfræðisviðs Coripharma Ráðin framkvæmdastjóri markaðsstofu Travel Connect Sjá meira