Hagsjá: Spáir 8,9% ársverðbólgu í október 16. október 2009 08:06
Hagfræðideild Landsbankans spáir því að verðbólga milli september og október mælist 0,4%. Gangi spáin eftir mun 12 mánaða verðbólga lækka þó nokkuð og mælast 8,9% í október samanborið við 10,8% í september. Þetta yrði því í fyrsta skipti í 18 mánuði sem 12 mánaða verðbólga mælist undir 10%. Fjallað er um málið í Hagsjá hagfræðideildarinnar. Þar segir að í október megi búast við að verð á mat- og drykkjarvöru hækki nokkuð vegna áhrifa af vörugjaldahækkuninni í síðasta mánuði. Aftur á móti bendir flest til þess að fasteignaverð sé ennþá á niðurleið, þrátt fyrir fjörkipp í síðasta mánuði. Spáin gerir ráð fyrir um 0,05% áhrifum til lækkunar vísitölu neysluverðs (VNV) í október. Þá hefur eldsneyti lækkað lítillega frá síðustu mælingu en að öllu óbreyttu má reikna með að sú lækkun hafi u.þ.b. 0,06% áhrif til lækkunar VNV. Hækkun vörugjalda á ýmsa matvöru tók gildi þann 1. september, og á hagfræðideildin von á að breytingu vörugjaldanna verði að mestu leyti velt hratt út í verðlagið. Hluti hækkananna kom fram í september en þá hækkuðu mat- og drykkjarvörur um að meðaltali 1,6% frá fyrri mánuði. Þegar sundurliðun hækkunarinnar er skoðuð kemur glöggt í ljós að hækkun vörugjaldanna hefur þar mikið að segja en gosdrykkir hækkuðu að jafnaði um 7,4% milli mánaða, kökur og sætabrauð um tæplega 8% og sælgæti og ís um u.þ.b. 4%. Þrátt fyrir þessa hækkun í september er líklegt að áhrifin séu ekki að fullu komin fram og því má einnig búast við nokkurri hækkun á matvöru nú í októbermælingunni. Í spánni ráð fyrir 1-1,5% hækkun matvöru milli september og október. „Þrátt fyrir óvænta hækkun á fasteignaliðnum í síðasta mánuði eigum við von á að sú þróun haldi ekki áfram í október en í spá okkar gerum við ráð fyrir um 0,05% áhrifum til lækkunar VNV í mánuðinum. Þá hefur eldsneyti lækkað í verði milli mánaða. Ef frá er talin verðhækkun á matvöru þá eigum við aðeins von á hóflegum hækkunum á öðrum liðum," segir í Hagsjánni. „Krónan hefur haldist tiltölulega stöðug frá því síðastliðið vor en gengisvísitalan hefur sveiflast á bilinu 230-240 frá því í byrjun júní. Jafnvel þó að gengi krónunnar sé enn lágt þá er þessi stöðugleiki jákvæð tíðindi hvað verðlagsþróunina varðar þar sem verðbólguþrýstingur vegna gengisins hefur minnkað hægt og bítandi." Það sem eftir lifir árs má búast við hratt dvínandi verðbólgu. Að því gefnu að gengi krónunnar haldist nokkuð stöðugt á næstunni má áætla að 12 mánaða verðbólga gæti verið komin í námunda við 6% í lok árs, að mati hagfræðideildarinnar.
Mest lesið Þúsund manna hátíðir ekkert mál en ein lítil kónguló skelfileg! Atvinnulíf Ölgerðin hækkar verðin Neytendur Segir sjaldan hafa verið auðveldara að vera fyrsti kaupandi Neytendur Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Viðskipti innlent Kynntust í janúar og kynna nýja lausn fyrir matvælaframleiðendur Atvinnulíf Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Viðskipti innlent Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Viðskipti innlent Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Sjá meira