Microsoft notar evrugengið 130 krónur til ársloka 27. júlí 2009 10:37
Evrugengið 130 mun verða notað í viðskiptum Microsoft við íslensk fyrirtæki, stofnanir og almenning til ársloka. Samningar um það náðust milli Microsoft Íslandi og höfuðstöðva Microsoft fyrir skömmu. Í tilkynningu segir að raungengi evrunnar er nú u.þ.b. 179 krónur, sem þýðir að Microsoft gengur út frá því í viðskiptum sínum á Íslandi að krónan sé umtalsvert sterkari en hún raunverulega er, með tilheyrandi kjarabótum fyrir viðskiptavini fyrirtækisins á Íslandi. Slíkt fyrirkomulag hefur verið í gildi frá byrjun desember á síðasta ári, en fram til júníloka var miðað við evrugengið 120. Nauðsynlegt reyndist að breyta viðmiðunargenginu þar sem væntingar Microsoft um styrkingu íslensku krónunnar hafa engan veginn gengið eftir. Evrugengi Microsoft hér á landi hefur mælst mjög vel fyrir meðal samstarfsaðila Microsoft Íslandi, en verkefnið kom hugbúnaðarviðskiptum af stað aftur í desember sl. eftir að markaðurinn hafði verið algerlega frosinn í kjölfar bankahrunsins. Upp frá því hefur markaður með hugbúnaðarlausnir Microsoft verið líflegur sem skiptir miklu máli fyrir fjölda fyrirtækja sem starfa á þessum markaði og hundruð starfsmanna þeirra sem vinna við sölu, innleiðingu og þróun Microsoft-lausna. „Þegar við fórum af stað með þennan stuðning við íslenskt atvinnulíf á afar erfiðum tímum síðasta vetur stóð evran í u.þ.b. 174 krónum og við gerðum ráð fyrir því að hún myndi fljótlega styrkjast. Nú, átta mánuðum síðar, er krónan veikari en við upphaf verkefnisins, sem eru gríðarleg vonbrigði," segir Halldór Jörgensson, framkvæmdastjóri Microsoft Íslandi „Við leggjum þó ekki árar í bát og það er ánægjuefni að tekist hafi að semja við höfuðstöðvar Microsoft um að halda fastgengisstefnunni áfram til ársloka. Það er mikilvæg viðspyrna fyrir íslensk fyrirtæki og stofnanir nú þegar krónan er í sögulegu lágmarki,"
Mest lesið Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Viðskipti innlent Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Viðskipti innlent Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Viðskipti innlent Nú er tíminn fyrir þak og klæðningar: „Við horfum á veðrið, ekki dagatalið“ Samstarf Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Viðskipti innlent Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Fleiri fréttir Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Sjá meira