Útlánavextir ÍLS gætu lækkað um 0,2-0,4 prósentustig 11. maí 2009 12:22
Útboð Íbúðalánasjóðs (ÍLS) í dag gæti leitt til þess að útlánavextir sjóðsins myndi lækka um 0,2-0,4 prósentustig. Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Íbúðalánasjóður (ÍLS) tilkynnti í morgun um þriðja útboð sitt á íbúðabréfum á þessu ári. Stefnir sjóðurinn að því að taka tilboðum í allt að 3 milljarða kr. bréfa að nafnvirði. Greining segir að tímasetning útboðsins sé skiljanleg í ljósi þess að krafa íbúðabréfa hefur snarlækkað það sem af er maímánuði. Er krafa lengri flokkanna nú svipuð og í upphafi árs, en krafa stysta flokksins, HFF14, er u.þ.b. prósentustigi hærri en um áramót. Verðtryggð krafa hefur raunar hækkað nokkuð það sem af er degi í fremur takmörkuðum viðskiptum. Ekki virðist hins vegar enn lát á kröfulækkun ríkisbréfa og hefur verðbólguálag því lækkað nokkuð frá lokum föstudags. Greining telur líklegt að ÍLS einbeiti sér að lengstu íbúðabréfaflokkunum í útboðinu nú. Bæði má gera að því skóna að meðallíftími eignahliðar sjóðsins sé að hækka vegna þeirra úrræða sem sjóðurinn hefur yfir að ráða til að koma til móts við skuldara í greiðsluvandræðum, og eins er líklegt að mikil áhersla sé nú á að ná niður vöxtum á íbúðalánum enda horfur á íbúðamarkaði bágar. Útlánavextir ÍLS eru nú 4,9% fyrir lán með uppgreiðsluákvæði, en 5,4% fyrir lán án slíks ákvæðis. „Miðað við kröfu lengstu íbúðabréfaflokkanna þegar þetta er ritað gæti sjóðurinn væntanlega lækkað útlánavexti sína um 0,2 - 0,4 prósentustig eftir útboð dagsins, kjósi hann að taka eingöngu tilboðum í lengstu ríkisbréfaflokkana," segir í Morgunkorninu.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Sjá meira