Hlutfall erlendra hærra hér en að meðaltali í ESB-löndum 18. desember 2009 12:23
Hlutfall erlendra ríkisborgara af heildaríbúafjölda hér á landi er nokkuð hærra en gengur og gerist í öðrum ríkjum Evrópu og jafnframt hærra en á öðrum Norðurlöndum. Hlutfall þetta var 7,4% í upphafi árs 2008 en þá var það að meðaltali 6,2% innan ríkja ESB.Greining Íslandsbanka fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar segir að etta hlutfall sé mjög mismunandi á milli ríkja. Þannig er algengara að hlutfallslegur fjöldi erlendra ríkisborgara sé hærra í þeim ríkjum þar sem lífkjör íbúa eru góð sem m.a. má sjá með tölum um landsframleiðslu á mann. Til að mynda í Sviss voru erlendir ríkisborgara ríflega fimmtungur af heildamannfjöldanum árið 2008 en þar í landi var landsframleiðsla á mann um 41% yfir meðaltali ESB ríkja.Í Búlgaríu, Póllandi og Rómaníu er hlutfall erlendra ríkisborgara af heildarmannfjölda undir 0,5% en í þessum ríkjum eru lífskjör, þá metin með landsframleiðslu á mann, töluvert verri en í öðrum ríkjum Evrópu. Þannig var landsframleiðsla á mann í Búlgaríu um 41% af meðaltali ESB-ríkjanna en þessi hlutföll voru 56% í Póllandi og svo 47% í Rómaníu. Þetta kom fram í tölum sem Evrópusambandið birti nýlega.Á fyrstu 9 mánuðum þess árs voru aðfluttir erlendir ríkisborgarar 2.793 en brotfluttir 3.538 hér á landi. Þetta er í fyrsta skipti frá árinu 1992 sem brotfluttir erlendir ríkisborgarar eru fleiri en aðfluttir þannig að flutningsjöfnuður þeirra er neikvæður um 745.Þessi þróun bendir því til þess að erlendum ríkisborgurum komi til með að fækka á fyrirliggjandi ári og reikna má með að þeim komi til með að fækka enn frekar á næsta ári miðað við stöðu og horfur í efnahags- og atvinnumálum hér á landi.Það er ekki bara að erlendum ríkisborgurum hafi fækkað á árinu heldur hefur þeim sem eru með íslenskan ríkisborgararétt einnig fækkað. Þannig voru aðfluttir íslenskir ríkisborgarar 2.072 en brotfluttir 4.021 og var flutningsjöfnuður þeirra því neikvæður um 1.949.Samkvæmt nýjum tölum frá Hagstofunni í Noregi þá eru Íslendingar sjötti stærsti hópur innflytjenda þar í landi. Þannig hafa um 1.300 Íslendingar flutt til Noregs á fyrstu 9 mánuðum þessa árs en til samanburðar má nefna að þeir voru um 200 á sama tíma árið 2008.
Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira