Viðskipti innlent

SVÞ segir engar líkur á að krónan styrkist

Stjórn Samtaka verslunar og þjónustu (SVÞ) vill koma þeim skilaboðum til félagsmanna sinna að eins og staðan er núna séu engar líkur að á gengi krónunnar styrkist á næstunni.

Þetta kemur fram á heimasíðu SVÞ. Þar segir ennfremur að þetta muni ekki breytast nema gripið verði til einhverra þeirra aðgerða af hálfu stjórnvalda sem hafa breytingu á núverandi stefnu í gengis- og peningamálum í för með sér.

Við bankahrunið sl. haust og þá veikingu krónunnar sem fylgdi í kjölfarið ólu margir félagsmenn SVÞ þá von í brjósti að um tímabundinn vanda væri að ræða og að gengi krónunnar myndi styrkjast að hálfu ári liðnu.

Því miður hafa þær spár ekki gengið eftir og raunar hafa mál þróast til verri vegar frekar en hitt. Gengisvísitalan hefur verið nálægt 230 stigum um nokkra hríð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×