Verðbréfamiðlun Straums í London bíður fyrirmæla frá Íslandi 9. mars 2009 13:14
Teathers, verðbréfamiðlun Straums í London, bíður nú fyrirmæla frá Íslandi. Starfsemi Teathers hefur legið niðri síðan í morgun þar sem kauphöllin í London hefur lokað fyrir öll viðskipti á vegum miðlunarinnar vegna hruns Straums á Íslandi. Í frétt um örlög Teathers í London í breska blaðinu Daily Telegraph segir að störf 80 starfsmanna Teathers séu nú í uppnámi og er það í annað sinn á skömmum tíma. Landsbankinn var fyrri eigandi Teathers og keypti Straumur miðlunina þegar Landsbankinn hrundi s.l. haust. Telegraph segir að alls séu um 150 starfsmenn Straums í Bretlandi í óvissu eftir að Fjármálaeftirlitið yfirtók bankann í morgun. Þar á meðal er fjármálaþjónustan Stamford Partners með 10 starfsmenn. Straumur á helmingshlut í því félagi. Talsmaður Stamford segir hinsvegar að fjármálaeftirlitið á Íslandi geti ekki krafist greiðslustöðvunar hjá félaginu og það haldi því sínu striki eftir sem áður.
Mest lesið Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Viðskipti innlent Anna Lísa til Aton Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira