Bílalán ekki leiðrétt hjá Lýsingu 28. október 2009 18:56
Engar leiðréttingar á bílalánum verða um mánaðamótin hjá Lýsingu eins og nýsamþykkt lög gera ráð fyrir. Ekki í takt við loforð stjórnvalda segir lántaki sem fékk óleiðréttan greiðsluseðil í dag. Hann segir það pirrandi að fá þetta í hausinn núna þar sem fólk hafi búist leiðréttri greiðslubyrði nú um mánaðarmótin. Aðgerðir stjórnvalda vegna greiðsluvanda heimilanna eiga samkvæmt lögum að taka gildi fyrsta nóvember. Nú eru greiðsluseðlarnir fyrir nóvember að detta inn um lúgurnar hjá landsmönnum og ekki er að sjá að breytingin taki gildi hjá öllum núna um mánaðarmótin. Lántaki hjá Lýsingu sendi fréttastofu tölvupósts-samskipti sín við þjónustufulltrúa Lýsingar. Þar spyr hann hvort að innheimta í nóvember verði miðuð við gengi erlendra mynta eins og þau standi í dag þrátt fyrir tilmæli stjórnvalda. Hvort hann mætti því búast við 34 þúsund króna greiðsluseðli í stað leiðréttrar upphæðar sem næmi þá um 17 þúsundum króna. Í svari til hans kemur fram að engar leiðréttingar muni eiga sér stað fyrr en í desember þar sem gjalddagar bílasamninga séu gefnir út 24. hvers mánaðar. Lántakinn sem fékk óleiðréttan greiðsluseðil í dag segir þetta ekki í takt við loforð stjórnvalda. Fólk hafi búist við að greiðslubyrðin yrði leiðrétt um mánaðarmótin. Því sé pirrandi að fá þetta í hausinn núna. Framkvæmdastjóri Lýsingar vildi ekki tjá sig um málið. Það eru þó ekki öll bílafjármögnunarfyrirtæki sem afgreiða málið á þennan hátt því leiðréttingarnar taka gildi núna um mánaðarmótin hjá t.a.m. SP fjármögnun.
Mest lesið Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Viðskipti innlent Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Viðskipti innlent Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Viðskipti erlent Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Viðskipti innlent Breytingar á fyrsta farrými Neytendur Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Viðskipti innlent Skordýr í dillinu Viðskipti innlent Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Viðskipti innlent Hreyfing: Ekki lengur þörf á að greiða tugi þúsunda yfir mánuðinn Atvinnulíf Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Sjá meira