Vogunarsjóðir sjá tækifæri í íslensku bönkunum á ný 28. október 2009 00:01
Vísbendingar eru um að bandarísku vogunarsjóðirnir sem veðjuðu gegn íslensku bönkunum í fyrravor eignist Íslandsbanka og Nýja Kaupþing að mestu leyti. Kröfuhafar Glitnis ákváðu að taka 95 prósenta hlut í Glitni fyrir hálfum mánuði. Um mánaðamótin ræðst hversu stóran hlut kröfuhafar Kaupþings taka í nýja bankanum. Vogunarsjóðirnir keyptu skuldatryggingar Glitnis, Kaupþings og Landsbankans í fyrravor með þeim afleiðingum að vaxtakjör bankanna ruku upp, og áttu þeir örðugt með fjármögnun á erlendum mörkuðum. Þá er grunur um að sjóðirnir hafi tekið skortstöður gegn erlendum fyrirtækjum sem þau íslensku áttu hlut í. Við það jókst álagið á íslensku fyrirtækin og keyrði það hlutabréf þeirra niður. Eftir fall bankanna fyrir ári sóttu vogunarsjóðirnir í að kaupa skuldabréf íslensku bankanna af þýskum bönkum og evrópskum fjármálafyrirtækjum. Evrópsku fyrirtækin höfðu flest tapað háum fjárhæðum eftir þrot íslensku bankanna og höfðu litla löngun til að eiga bréfin, hvað þá hlut í bönkunum. Að því leyti teljast vogunarsjóðirnir heppilegri eigendur. Skuldabréf Glitnis og Kaupþings voru seld með allt að 98 prósenta afslætti eftir fall bankanna í fyrra. Verðið hefur að minnsta kosti fjórfaldast síðan þá og er meiri hækkunar vænst. Þeir sem Fréttablaðið hefur rætt við segja vogunarsjóðina hafa aflað sér mikillar þekkingar á íslensku efnahagslífi eftir viðskipti við Íslendinga um árabil. Þá kunni þeir að sjá hagnaðarvon í endurreisn íslenska efnahagslífsins, ekki síst eftir að verstu eignirnar hafa verið hreinsaðar úr bókum bankanna, þar á meðal skuldir eignarhaldsfélaga. Seðlabankinn sagði í fyrradag skuldir eignarhaldsfélaganna nema eitt þúsund milljörðum króna. Kröfur á þau hafa verið færðar niður í bókum bankanna. Skilanefnd Glitnis býst í besta falli við að tíu prósent skuldanna skili sér. Árni Tómasson, formaður skilanefndarinnar, staðfestir þetta og segir allt eins líklegt að krafan verði strikuð úr bókum bankans. Ekki mun þó um afskrift lána að ræða og kann því eitthvað að skila sér í hús á endanum. Mikil áhætta er sömuleiðis falin í kröfum á rekstrarfélög, sem mörg hver standa illa. Það er helsti vandi bankanna í dag. - jab
Mest lesið Meirihluti í SA andvígur ESB aðild Viðskipti innlent Valsstelpa í lyfjabyltingu: „Ég var alltaf svolítið skrýtin blanda“ Atvinnulíf Vélfag stefnir ríkinu Viðskipti innlent Airpods allt að 40 prósent dýrari hérlendis Neytendur Tveir nýir stjórnendur hjá Símanum Viðskipti innlent Syndis kaupir sænskt fyrirtæki Viðskipti innlent Framtíð hljóðsins er lent á Íslandi Samstarf Jóhann Páll hættir við þátttöku á haustfundi SVEIT Viðskipti innlent Rúmgóður ferðafélagi með sportlegu yfirbragði Samstarf Murdoch-feðgar verði meðal kaupenda TikTok Viðskipti erlent Fleiri fréttir Vélfag stefnir ríkinu Meirihluti í SA andvígur ESB aðild Ráðinn nýr tækni- og þjónustustjóri Advania á Akureyri Syndis kaupir sænskt fyrirtæki Tveir nýir stjórnendur hjá Símanum Jóhann Páll hættir við þátttöku á haustfundi SVEIT Heimavöllur Aftureldingar kenndur við rafmyntafyrirtæki Ráðinn markaðsstjóri Emmessíss Hörður og Svala endurvekja Macland Hyggja á opnun verslunar á Höfn á næsta ári Litla kaffistofan verði nýtt fyrir norðurljósaferðir Endurbyggja gömul hús úr miðbæ Reykjavíkur á Selfossi Arnar og Aron Elí til Reita Eftirlitið veður í Veðurstofuna Eldgosin við Grindavík höfðu mikil áhrif á neikvæða afkomu hins opinbera Leitin skili tekjum í ríkissjóð þó það finnist ekki olía Langþreytt á fasteignakeðjum sem slitna og ætlar aldrei aftur að flytja Vara við díoxíni í Landnámseggjum Slá milljarða lán til að fjármagna jarð- og sæstrengi Laganemar bjóða leigjendum áfram upp á fría ráðgjöf Heiður Anna nýr framkvæmdastjóri FS Tekur við stöðu framkvæmdastjóra Landmarks fasteignamiðlunar Olíuleit geti skipt sköpum fyrir framtíð þjóðarinnar Edda Hermanns nýr forstjóri Lyfja og heilsu Djúpstæð vonbrigði þegar margra eigna keðjur slitna Andri Sævar og Svava til Daga Tveir nýir vörumerkjastjórar til Ölgerðarinnar Tekur við sem framkvæmdastjóri verkfræðisviðs Coripharma Ráðin framkvæmdastjóri markaðsstofu Travel Connect Birgir til Banana Sjá meira