CCP flytur öll bankaviðskipti sín á Íslandi til MP Banka 28. október 2009 13:32
CCP hf. og MP Banki hf. hafa undirritað samninga um endurfjármögnun CCP og flutning allra bankaviðskipta félagsins á Íslandi til MP Banka. Í kjölfar samningsins hefur CCP greitt upp víxla félagsins sem skráðir voru í Kauphöll og voru á gjalddaga þann 28. október. Í tilkynningu segir að önnur eldri og óhagstæðari lán hafa einnig verið greidd upp og í stað þeirra og víxlanna kemur ný lánsfjármögnun til tveggja ára. "Félagið nær þarna hagstæðri áframhaldandi lánsfjármögnun í íslenskri krónu með miklum sveigjanleika, sem hentar okkar rekstri. Frumkvæði MP Banka, elsta starfandi banka landsins, í því að efna til samstarfs við öflugt nýsköpunarfyrirtæki í örum vexti, er til fyrirmyndar," segir Vilhjálmur Þorsteinsson, stjórnarformaður CCP. "Við teljum MP Banka öflugan banka vel í stakk búinn til að veita okkur hagkvæma og góða þjónustu. Starfsemi CCP er alþjóðleg og félagið er með skrifstofur í Bandaríkjunum, Kína og Bretlandi ásamt höfuðstöðvum hér á landi. Bankaþjónustan er því alþjóðleg og í fjölmörgum myntum en tekjur CCP eru nær eingöngu í dollurum og evrum", segir Ívar Kristjánsson, fjármálastjóri CCP. Rekstur CCP hefur gengið vel og stöðug aukning er í fjölda áskrifenda að sýndarheiminum EVE-Online. Reksturinn skilaði 6,4 milljón dollara hagnaði (um 800 milljón kr.) á fyrstu sex mánuðum ársins, samanborið við rétt rúmar tvær milljónir dollara á sama tíma í fyrra. Tekjur af EVE-Online tölvuleiknum námu 25,4 milljónum dollara (um 3,2 milljörðum kr.) fyrri helming þessa árs en það er rúmlega fjögurra milljóna dala aukning frá í fyrra. "Við erum sérstaklega ánægð að fá CCP í viðskipti til okkar", segir Árni Maríasson, forstöðumaður Lánasviðs MP Banka. "Við höfum kynnst rekstri CCP vel og teljum fyrirtækið vera afar spennandi. Þá er CCP að gera góða hluti á alþjóðlegum mörkuðum og er að skapa landinu miklar gjaldeyristekjur. Við hjá MP Banka erum stolt af því að samningar hafa náðst um að MP Banki fjármagni félagið og fái fyrirtækið í heildarviðskipti. Við viljum standa með öflugum fyrirtækjum sem hafa sannað sig og hafa markað sér skynsamlega og trúverðuga stefnu til framtíðar."
Mest lesið Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Viðskipti innlent Möguleg endalok ferilsins: Hræðist að tapa fyrir eiginkonunni Atvinnulíf Vara við afleiðingunum Viðskipti innlent Innkalla hrísgrjón vegna skordýraleifa Neytendur Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Viðskipti innlent NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Viðskipti innlent Leitað að fyrirmyndum í öryggismálum fyrirtækja Samstarf Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Viðskipti innlent Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Viðskipti innlent Skordýraeitur á Pinkids eplum í öskju Neytendur Fleiri fréttir Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Vara við afleiðingunum NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Hermann framkvæmdastjóri Fálkans Ísmars Telur Þórð hafa misskilið en sama tala varð niðurstaðan Fjórar af hverjum fimm íbúðum seljast undir auglýstu verði: „Við höfum miklar áhyggjur“ Bundu nær allan koltvísýring og brennistein á Hellisheiði Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Íslandshótelum Ráðin markaðsstjóri Prís Saka Símann um undirboð með áskriftarpakka Opna nýtt kaffihús í Listasafni Reykjavíkur Svona er umhorfs í endurbættri fríhöfn Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Atli Þór til Almannaróms Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Færri tengifarþegar en fleiri komu til Íslands Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Sjá meira