Raungengið ekki verið lægra í þrjá áratugi 7. apríl 2009 12:54
Raungengi krónunnar er nú talsvert lægra en verið hefur síðustu þrjá áratugi. Lætur nærri að hlutfallslegt verð á neysluvörum og þjónustu hér á landi miðað við önnur lönd hafi verið 30% lægra á fyrsta ársfjórðungi þessa árs en raunin var að meðaltali undanfarin 30 ár og staðan er svipuð þegar launakostnaður á Íslandi er borinn saman við viðskiptalönd okkar, að því er fram kemur í morgunkorni Íslandsbanka. Bankinn bendir því á að Ísland sé ódýrt land þessa dagana, hvort sem miðað er við verðlag eða launakostnað. „Að sama skapi finna landsmenn fyrir lágu raungengi í því hversu dýrt uppihald í utanlandsferðum er þessa dagana, mælt í krónum, og eins því hversu hagstæð launakjör í nágrannalöndum virðast nú vera í krónum talið. Í nýlega birtum tölum Seðlabankans um raungengi kemur fram að raungengi í mars, mælt á kvarða hlutfallslegs verðlags, lækkaði um 2,4% á milli mánaða. Lækkunin skrifast að mestu á veikingu krónu milli mánaða en væntanlega einnig á 0,6% lækkun vísitölu neysluverðs hér á landi í mars. Mældist raungengi á þennan mælikvarða 77,7 stig, en til samanburðar hefur raungengið að meðaltali verið 98 stig undanfarin 30 ár," segir ennfremur. Í morgunkorninu er einni bent á að Seðlabankinn hafi birt tölur fyrir þróun raungengis á mælikvarða hlutfallslegs launakostnaðar á fyrsta fjórðungi ársins. „Samkvæmt þeim hækkaði raungengið á þann mælikvarða um 14% frá fjórðungnum á undan en mældist samt sem áður tæplega 30% undir meðaltali undanfarinna áratuga. Íslensk fyrirtæki eru nú um stundir mun samkeppnishæfari en áður hvað varðar kostnað við mannaflsfreka starfsemi sem keppir við innflutta eða erlenda starfsemi." Það á jafnt við um ýmis konar vöruframleiðslu sem og þjónustu. „Lágt raungengi flytur þannig eftirspurn inn í hagkerfið, sem ætti að hjálpa til við að takast á við núverandi efnahagsáföll. Hins vegar má segja að ekki þurfi jafn lágt raungengi og raunin er nú til þess arna. Þannig hefur tvisvar á undanförnum tveimur áratugum komið skeið afgangs á utanríkisviðskiptum, fyrst um miðbik tíunda áratugar síðustu aldar og svo fljótlega upp úr aldamótum. Á báðum þessum tímabilum var raungengi krónu, miðað við hlutfallslegt verðlag, rúm 90 stig sem er ríflega 30% hærra raungengi en var á fyrsta fjórðungi þessa árs," segir að lokum.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Sjá meira