Hafnarfjörður verði rekin með hagnaði á næsta ári 15. desember 2009 14:51
Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðar gerir ráð fyrir að bæjarfélagið verði rekið með hagnaði á næsta ári. Rekstrarniðurstaða A og B hluta er áætluð jákvæð um 401 milljónir kr. en til samanburðar má gera ráð fyrir hallarekstri upp á tæpa 2 milljarða kr. í ár.Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar fyrir árið 2010 ásamt langtímaáætlun fyrir árin 2011-2013 var tekin til fyrri umræðu í bæjarstjórn Hafnarfjarðar í dag.Í tilkynningu segir að þrátt fyrir fyrirséður sé umtalsverður samdráttur í tekjum bæjarsjóðs samhliða auknum útgjöldum vegna fjölskyldu og velferðarmála, verður áfram lögð megináhersla á að ná fram hagræðingu og sparnaði í rekstri, stjórnsýslu og framkvæmdum án þess að skerða grunnþjónustu og velferðarmál.Framlög til velferðarmála munu aukast m.a. með hækkun framfærslustyrkja. Almenn þjónustugjöld sem tengjast grunn- og leikskóla verða óbreytt fram að nýju skólaári og kynntar hafa verið tillögur um aukinn afslátt af fasteignagjöldum til ellilífeyrisþega og öryrkja. Hagræðingu í rekstri verður m.a. náð með auknu aðhaldi, nýjum þjónustuútboðum, markvissri stýringu í rekstri fasteigna, lækkun launakostnaðar og öðrum aðgerðum án þess að grunnþjónusta verði skert né gæði almennrar þjónustu við bæjarbúa.Gert er ráð fyrir að rekstrarniðurstaða A hluta verði jákvæð um nær 668 milljónir kr. fyrir fjármagnsliði á árinu 2010 en hún verður jákvæð um rúmar 158 milljónir kr. samkvæmt útkomuspá fyrir árið 2009. Rekstrarniðurstaða eftir fjármagnsliði er áætluð jákvæð um 247 milljónir kr. á árinu 2010 en samkvæmt útkomuspá 2009 er rekstrarniðurstaða hins vegar neikvæð eftir fjármagnsliði um 1.552 milljónir kr. vegna óhagstæðra gengis- og verðlagsbreytinga.Rekstrarniðurstaða A og B hluta er áætluð jákvæð um 401 milljónir kr. á árinu 2010 en samkvæmt útkomuspá fyrir árið 2009 eru hún neikvæð um 1.948 milljónir kr.Dregið hefur verið úr öllum framkvæmdum og fjárfestingum á árinu 2009 en fjárfestingaráætlun fyrir árið 2010 verður endurskoðuð þegar línur skýrast varðandi fjármögnun hverrar framkvæmdar.Forsendur fyrir fjárhagsáætluin næsta árs eru að gert er ráð fyrir að útsvarshlutfallið verði óbreytt á milli ára eða 13,28%. Áætlun útsvarstekna er byggð á útkomuspá ársins 2009 en gert er ráð fyrir að íbúatala verði óbreytt. Reikna má með því að launabreytingar á árinu 2010 verði óverulegar.Áætlaðar útsvarstekjur lækka um 4% á milli ára frá útkomuspá sem er raunlækkun um ríflega 8% miðað við verðlagsforsendur. Álagningarhlutfall fasteignaskatts, vatnsgjalds, holræsagjalds og lóðarleigu verður óbreytt á milli ára en sorpeyðingargjald hækkar um 10% á milli ára. Umfangsmikið endurmat á landsvísu varð á matsstofni fasteigna fyrr á árinu en það leiddi til að matsstofn Hafnarfjarðarbæjar lækkar um 3,6% á milli ára. Þessi lækkun leiðir til að tekjur vegna fasteignagjalda lækka sem nemur þessum prósentum miðað við álagningu ársins 2009.Reiknað er með að launabreytingar á árinu 2010 verði óverulegar. Á yfirstandandi ári var farið í aðgerðir til að lækka launakostnað sem munu skila sér enn frekar á árinu 2010.Ekki er gert ráð fyrir að þjónustugjöld bæjarins hækki þrátt fyrir miklar verðlagshækkanir á árinu 2010, en farið verður í endurskoðun á uppbyggingu gjaldskráa bæjarins og í framhaldi af þeirri vinnu verður tekin ákvörðun um breytingu á þeim.
Mest lesið „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Viðskipti innlent Missir stöðu sína sem eini billjónamæringur heims Viðskipti erlent Einungis sjö bílar kallaðir inn Neytendur Súkkulaði hækkað um tæpan þriðjung á tveimur árum Neytendur Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu Viðskipti innlent Það borgar sig að bregðast við í tíma: Hagnýt ráð frá múrarameistara Samstarf Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Viðskipti innlent Kaupmáttur heldur áfram að aukast Neytendur Olíuverð ekki verið lægra frá því árásirnar á Íran hófust Viðskipti erlent Taka ekki upp gjaldskyldu við Kringluna Neytendur Fleiri fréttir Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Rakel nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Segir ríkar ástæður fyrir því að flugmenn eigi að vera vel launaðir Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum John Strickland: Icelandair þarf að vera snjallt þegar nýjar þotur breyta leiknum Samkeppnishæfni Íslands og annarra Norðurlanda fellur milli ára Þróunin í þá átt að verða enn meiri kaupendamarkaður Nýtt endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtæki undir merkjum LOGOS Villi Birgis grætur Krambúðina á Akranesi Bláa lónið festir kaup á Arctic Adventures og stefnir á markað LánHeimur ekki undir eftirliti fjármálaeftirlits Sjá meira