Um 90% fást upp í Icesave skuldbindingarnar Guðný Helga Herbertsdóttir skrifar 12. október 2009 18:21
Allt bendir til þess að níutíu prósent fáist upp í Icesaveskuldbindingar Íslands miðað við uppgjör milli gamla og nýja bankans sem gert var um helgina. Um 75 milljarðar króna falla þá á íslensku þjóðina auk vaxta. Samningar um uppgjör milli nýja bankans og gamla tókust aðfaranótt laugardagsins en skilanefnd Landsbankans og fulltrúar fjármálaráðuneytisins og ráðgjafar þess funduðu um málið í Lundúnum. Um er að ræða 10 ára skuldabréf upp á 260 milljarða króna og þá mun gamli bankinn eignast um 20% hlut í þeim nýja en sá hlutur er metinn á 28 milljarða króna. Þá er annað skilyrt skuldabréf upp á 90 milljarða króna en samtals nemur uppgjörið milli bankanna þá á bilinu um 290 til 380 milljörðum króna. Með þessu er nýi bankinn að greiða gamla bankanum fyrir þær eignir sem hann tók yfir við bankahrunið á síðasta ári. Lárentsínus Kristjánsson, formaður skilanefndar Landsbankans, segir þetta ásættanlega niðurstöðu. Ef miðað er við að Icesaveskuldbindingin sé um 750 milljarðar króna sem hefur verið algeng viðmiðun þá munu, samkvæmt þessu, 75 milljarðar króna falla á íslensku þjóðina. Hér er þó ekki búið að gera ráð fyrir vaxtakostnaði auk þess sem ekki er ljóst hversu langan tíma tekur að koma eignum Landsbankans í verð.
Mest lesið Hvernig fæ ég unglingana mína til að fara betur með peninga? Viðskipti innlent Guðrún til Landsbankans Viðskipti innlent Airpods allt að 40 prósent dýrari hérlendis Neytendur Meirihluti í SA andvígur ESB aðild Viðskipti innlent Vélfag stefnir ríkinu Viðskipti innlent Valsstelpa í lyfjabyltingu: „Ég var alltaf svolítið skrýtin blanda“ Atvinnulíf „Það er betlmenning og allir eiga að fá allt frítt“ Viðskipti innlent Syndis kaupir sænskt fyrirtæki Viðskipti innlent Tveir nýir stjórnendur hjá Símanum Viðskipti innlent Framtíð hljóðsins er lent á Íslandi Samstarf Fleiri fréttir Bætist í eigendahóp Strategíu Guðrún til Landsbankans Hvernig fæ ég unglingana mína til að fara betur með peninga? „Það er betlmenning og allir eiga að fá allt frítt“ Vélfag stefnir ríkinu Meirihluti í SA andvígur ESB aðild Ráðinn nýr tækni- og þjónustustjóri Advania á Akureyri Syndis kaupir sænskt fyrirtæki Tveir nýir stjórnendur hjá Símanum Jóhann Páll hættir við þátttöku á haustfundi SVEIT Heimavöllur Aftureldingar kenndur við rafmyntafyrirtæki Ráðinn markaðsstjóri Emmessíss Hörður og Svala endurvekja Macland Hyggja á opnun verslunar á Höfn á næsta ári Litla kaffistofan verði nýtt fyrir norðurljósaferðir Endurbyggja gömul hús úr miðbæ Reykjavíkur á Selfossi Arnar og Aron Elí til Reita Eftirlitið veður í Veðurstofuna Eldgosin við Grindavík höfðu mikil áhrif á neikvæða afkomu hins opinbera Leitin skili tekjum í ríkissjóð þó það finnist ekki olía Langþreytt á fasteignakeðjum sem slitna og ætlar aldrei aftur að flytja Vara við díoxíni í Landnámseggjum Slá milljarða lán til að fjármagna jarð- og sæstrengi Laganemar bjóða leigjendum áfram upp á fría ráðgjöf Heiður Anna nýr framkvæmdastjóri FS Tekur við stöðu framkvæmdastjóra Landmarks fasteignamiðlunar Olíuleit geti skipt sköpum fyrir framtíð þjóðarinnar Edda Hermanns nýr forstjóri Lyfja og heilsu Djúpstæð vonbrigði þegar margra eigna keðjur slitna Andri Sævar og Svava til Daga Sjá meira