Áfrýjunarnefnd ógildir kaup Valitors á Tax Free 5. maí 2009 14:18
Áfrýjunarnefnd samkeppnismála hefur nú staðfest ákvörðun Samkeppniseftirlitsins um að ógilda beri kaup Valitors á öllu hlutafé Euro Refund Group North á Íslandi ehf. (Tax Free). Í frétt um málið á vefsíðu eftirlitsins segir að í úrskurðinum fellst nefndin á skilgreiningar Samkeppniseftirlitsins á þeim mörkuðum sem til skoðunar eru og reynir á í þessu máli og að eftirlitið hafi með fullnægjandi hætti fært fram rök fyrir því að samruninn sé í grundvallaratriðum andstæður samkeppnislögum. Það er einnig álit nefndarinnar að áfrýjandi hafi ekki sýnt fram á að unnt væri að setja samrunanum skilyrði sem kæmu í veg fyrir þau skaðlegu áhrif sem samruninn hefði í för með sér. Úrskurð áfrýjunarnefndar er að finna á heimasíðu Samkeppniseftirlitsins Það var þann 30. Janúar að Samkeppniseftirlitið ógilti kaup Valitors hf. á öllu hlutafé í Tax Free. Valitor starfar aðallega við útgáfu greiðslukorta og færsluhirðingu en meginstarfsemi Tax Free er á sviði endurgreiðslu virðisaukaskatts til erlendra ferðamanna. Komst Samkeppniseftirlitið að þeirri niðurstöðu að markaðir þeir sem fyrirtækin starfa á væru nátengdir. Um væri að ræða samsteypusamruna fyrirtækja þar sem skapast geti mikill möguleiki, geta og hvati til útilokunar keppinauta á mörkuðum fyrir greiðslukortastarfsemi, posaleigu, endurgreiðslu virðisaukaskatts til erlendra ferðamanna og svokölluðum gjaldeyrisumsnúningi. Í því síðastnefnda felst þjónusta við erlenda ferðamenn um uppgjör viðskipta með kreditkortum í erlendum gjaldmiðli. Sýnt var fram á að staða annarra aðila á viðkomandi mörkuðum gæti veikst og að samruninn gæti leitt til þess að keppinautar hrektust af markaði og innkoma nýrra aðila yrði torvelduð. Með því myndi valkostum söluaðila á skilgreindum mörkuðum fækka, til tjóns fyrir neytendur. Þá var sýnt fram á að skilyrði sem samrunaaðilar voru tilbúnir að samþykkja væru ekki nægileg til þess að koma í veg fyrir hin skaðlegu áhrif. Samruninn var því talinn fela í sér alvarlegar samkeppnishömlur. Euro Refund Group North á Íslandi ehf. skaut ákvörðun Samkeppniseftirlitsins til áfrýjunarnefndar samkeppnismála og krafðist þess að ákvörðun eftirlitsins yrði felld úr gildi þar sem ósannað væri að samruninn hefði í för með sér skaðleg áhrif á samkeppni. Til vara krafðist fyrirtækið þess að áfrýjunarnefndin heimilaði samrunann með fyrrnefndum skilyrðum.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Sjá meira