Fær Kaupþing Bónus? 29. október 2009 18:36
Tveir starfsmenn Kaupþings hafa verið skipaðir í stjórn móðurfélags Haga. Félagið er nú skráð í höfuðstöðvum Kaupþings. Jón Ásgeir Jóhannesson og fjölskylda hafa nokkrar vikur til að koma með nýtt fé í reksturinn - takist það ekki lenda Hagar í ríkiseigu. Tilkynnt var fyrir um viku að Hagar hefðu lokið endurfjármögnun félagsins í samstarfi við Landsbankann og Kaupþing. Í tilkynningu frá Högum kom fram að félagið hefði greitt að fullu skuldabréfaflokk þess, upphaflega 7 milljarða króna. Hagar eru í eigu félagsins 1998 hf. sem er í eigu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og fjölskyldu. Stjórn 1998 hefur verið skipuð þeim Ingibjörgu Pálmadóttur, Hreini Loftssyni og Kristínu Jóhannesdóttur. Þau eru ekki lengur skráð í stjórn félagsins en Sigurjón Pálsson og Regin Freyr Mogensen, lögmenn sem starfa hjá Kaupþingi eru nú komnir í stjórn auk Jóhannesar Jónssonar sem kenndur er við Bónus. Þá hefur heimilisfang félagsins einnig verið flutt í höfuðstöðvar bankans. Jóhannes segir að þegar endurfjármögnunin hafi verið gerð hafi verið gerður skriflegur samningur milli Kaupþings og eigenda félagsins að auka hlutafé í því.„Það er okkar mál að sinni," segir Jóhannes aðspurður hvert félagið ætli að sæki það hlutafé. Hann segir félagið hafa nokkrar vikur til þess. Jóhannes vill ekki gefa upp hversu mikið fé þurfi að koma með inn í Haga. Jóhannes segir að þetta þýði ekki fjölskyldan sé að missa völd í Högum. „Nei, alls ekki."
Mest lesið Verðbólga eykst verulega Viðskipti innlent „Ég verð að segja að ég er svolítið hlessa“ Neytendur Frosti og Arnþrúður fá styrki Viðskipti innlent Landsbankinn sýknaður af öllum kröfum í Vaxtamálunum Neytendur Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Viðskipti innlent Hvetja neytendur til að vera á varðbergi eftir áramót Neytendur Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Viðskipti innlent Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Kvartanir berast í hverri viku vegna gjafabréfa Neytendur Skellir í vél á morgnana og nokkuð ánægð með sjálfa sig í gjafavali Atvinnulíf Fleiri fréttir Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Edda Rós til Hagstofunnar Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ Sjá meira