Samkeppniseftirlitið sektar Senu og Haga um milljónir króna 26. júní 2009 15:40 Björn Sigurðsson framkvæmdarstjóri Senu og Finnur Árnason forstjóri Haga.
Í nýjum ákvörðunum Samkeppniseftirlitsins er komist að þeirri niðurstöðu að annars vegar Sena og hinsvegar Hagar hafi brotið gegn banni samkeppnislaga við því að samruni komi til framkvæmda áður en eftirlitið hefur heimilað hann. Er lögð tuttugu milljóna króna sekt á Haga og fimmtán milljóna króna sekt á Senu vegna þessara brota. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu. Þá segir að í samkeppnislögum sé lagt bann við því að samruni komi til framkvæmda á meðan Samkeppniseftirlitið fjallar um hann, nema til komi sérstakt leyfi Samkeppniseftirlitsins. „Er þessari reglu ætlað að tryggja að unnt sé með fullnægjandi hætti að vinna gegn samkeppnishamlandi samrunum. Er sérstaklega gert ráð fyrir því í samkeppnislögum að lögð séu viðurlög á fyrirtæki sem brjóta gegn þessari reglu. Eru þetta fyrstu málin þar sem slíkum viðurlögum er beitt, en regla þessi kom inn í samkeppnislög í maí 2008. Þá segir að mál Haga hf. varði samruna sem fólst í kaupum félagsins á BT Verslunum í nóvember 2008. „Var sá samruni framkvæmdur af Högum áður en hann var tilkynntur Samkeppniseftirlitinu í samræmi við lög. Þar af leiðandi var samrunanum hrint í framkvæmd áður en Samkeppniseftirlitinu gafst tækifæri til að meta áhrif samrunans á samkeppni. Fólst í þessu brot á umræddu ákvæði samkeppnislaga. Eftir að Samkeppniseftirlitið birti það frummat sitt að umræddur samruni væri samkeppnishamlandi gengu kaupin til baka og BT er ekki lengur í eigu Haga. Um það er fjallað í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins frá 15. maí 2009 (nr. 20/2009)." Mál Senu tengist kaupum félagsins á Skífunni í október 2008. „Var sá samruni framkvæmdur af Senu áður en hann var tilkynntur Samkeppniseftirlitinu. Jafnframt var honum hrint í framkvæmd meðan málið var í rannsókn. Fólst í þessu brot Senu á áðurnefndu ákvæði samkeppnislaga. Í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins frá 2. apríl 2009 (mál nr. 12/2009) var komist að þeirri niðurstöðu að samruni Senu og Skífunnar raskaði samkeppni. Þar sem annar aðili hafði í millitíðinni eignast Senu var talið unnt að heimila samrunann að uppfylltum skilyrðum til þess að vernda samkeppni," segir í tilkynningunni.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Sjá meira