JP Lögmenn fyrstir í skrifstofur turnsins við Höfðatorg 6. nóvember 2009 12:30 Mynd: GVA.
JP Lögmenn urðu um síðastliðin mánaðamót fyrstir til að flytja inn í skrifstofuhúsnæði í turninum við Höfðatorg í Reykjavík. JP Lögmenn eru á 16. hæð turnsins sem er 19 hæða hár, en lögfræðistofan er einnig með aðsetur á Selfossi. Í tilkynningu segir að JP Lögmenn hafa vaxið umtalsvert á þessu ári en hjá fyrirtækinu starfa nú 12 manns, níu í Reykjavík og þrír á Selfossi. Sex lögmenn með fjölbreytta reynslu starfa hjá JP Lögmönnum en stofan sérhæfir sig m.a. í málflutningi, samkeppnis-, samninga-, kröfu- og gjaldþrotarétti, svo og skaðabótamálum. JP Lögmenn starfrækja m.a. vefinn www.slysabætur.is sem er upplýsingavefur fyrir almenning um rétt til slysabóta og feril slíkra mála. "Það er einkar ánægjulegt að JP Lögmenn skuli vera fyrstir til að flytja skrifstofur sínar í þessa einstöku byggingu með þessu magnaða útsýni. Stofan hóf starfsemi fyrir sléttum 40 árum og okkur fannst við hæfi að byrja næstu 40 árin hér. Við væntum þess að þegar fram í sækir verði hér á Höfðatorgi blómlegt atvinnulíf og skemmtilegt mannlíf," segir Daði Ólafsson, lögmaður hjá JP Lögmönnum. Í turninum er nú þegar einn matsölustaður og annar mun opna snemma á næsta ári. Þá munu nokkur fyrirtæki hefja starfsemi á Höfðatorgi á næstunni. Mikill áhugi er á turninum og gera forsvarsmenn Höfðatorgs sér vonir um að stór hluti hans verði kominn í leigu á næstu mánuðum. Samið hefur verið um rekstur 350 herbergja hótels á Höfðatorgi sem ráðgert er að opni í mars 2012. "Við bjóðum JP Lögmenn velkomna í turninn okkar og erum sannfærð um að það muni fara ákaflega vel um starfsemi fyrirtækisins í byggingunni. Við erum stoltir af verkefninu og vitum að það verður borginni til mikils sóma", segir Pétur Guðmundsson, stjórnarformaður Höfðatorgs ehf.
Mest lesið Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Viðskipti innlent Er blanda af Prins Valíant og Múmínálfinum Atvinnulíf Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Neytendur Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Fiskikóngurinn fagnar stækkun með glæsilegri opnunarhátíð Lífið samstarf Voni að allir fái starfið aftur Viðskipti innlent Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Sjá meira