Eignarhlutur Björgólfs Thors verði þynntur út Jón Hákon Halldórsson skrifar 17. desember 2009 11:23 Katrín Júlíusdóttir lagði fram frumvarpið í fyrrakvöld. „
Það sem þetta verkefni snýst um er einfaldlega þetta. Ætlum við að láta alla fjárfestinguna fara forgörðum út af fortíð og sögu eins minnihlutaeigenda í þessu fyrirtæki eða ætlum við að stuðla að því að það geti gerst að það komi nýtt fjarmagn inn í þetta verkefni og að þessi aðili sem hér er um rætt verði þynntur út?" Þetta sagði Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi í dag. Katrín var að svara Birgittu Jónsdóttur, þingmanni Hreyfingarinnar, sem spurði hvort eðlilegt væri að ríkið veitti fyrirtæki sem væri að 40%, í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar viðskiptafyrirgreiðslu vegna fyrirhugaðrar byggingar á gagnaveri á Reykjanesi. „Telur ráðherra að Björgólfur Thor Björgólfsson ætti ekki fyrst að skila þýfinu sem hvarf af Icesave reikningunum sem hann ber beina ábyrgð á?" „Mér þykir ógeðfellt hvernig þingmenn hér eru að reyna að gera þetta mál tortryggilegt," sagði Katrín. Um væri að ræða mikið hagsmunamál fyrir Suðurnesjamenn og alla landsmenn. Katrín sagði að þegar frest hefði af því að erlendir aðilar hefðu haft áhuga á að reisa gagnvar hafi hið opinbera strax farið í viðræður við þessa aðila. Í millitíðinni hafi orðið hrun á íslenskum bankamarkaði. Við það hafi ýmislegt breyst en þeir aðilar sem áttu þarna minnihluta í fyrirtækinu væru enn inni. Katrín sagði að aðgerðir stjórnvalda miðuðu að því að eignarhlutur Björgólfs yrði þynntur út. Iðnaðarráðherra lagði fram frumvarp um heimildir til samninga um gagnaver í Reykjanesbæ við Verner Holdings á Alþingi í fyrrakvöld.
Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Innlent Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Erlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Fleiri fréttir „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Sjá meira