Nýr pallbíll frá VW 12. júní 2009 05:00 Volkswagen Amarok verður frumkynntur í Suður-Ameríku árið 2010.
Volkswagen kynnir nýjan pallbíl sem hefur fengið nafnið Amarok. Hann er væntanlegur á markað á Íslandi um mitt næsta ár. Haustið 2009 verður Volkswagen Amarok fyrsti pallbíllinn sem frumkynntur er frá stórum evrópskum bílaframleiðanda í Suður-Ameríku. Með Amarok, sem þýðir úlfur á inúítamáli, stefnir Volkswagen að því að verða fullgildur þátttakandi í alþjóðlegum markaði fyrir pallbíla þar sem japanskir framleiðendur hafa fram til þessa að mestu leyti verið einráðir. Amarok verður framleiddur í Pacheco-verksmiðju Volkswagen nálægt Buenos Aires í Argentínu. Pallbílar eru mjög eftirsóttir í Brasilíu og Argentínu jafnt til frístundanotkunar og í atvinnuskyni. Amarok er fyrsti pallbíll í þessum stærðarflokki sem framleiddur er af evrópskum bílaframleiðanda. Samkeppni frá öðrum pallbílum í 1-tonna flokki mun einkum koma frá asískum framleiðendum. Amarok er sjötta gerðin sem framleidd er af Volkswagen atvinnubílum en fyrir eru gerðirnar Caddy, Transporter og Crafter ásamt Saveiro og T2, en tveir síðastnefndu eru eingöngu til sölu í Suður-Ameríku. Amarok verður kynntur sem fernra dyra „double-cab“ með fjórhjóladrifi. Síðar verður boðið upp á „single-cab“ útfærslu. Hann verður boðinn með sparneytnum vélum og útlitshönnunin er í takt við nýjustu strauma hjá Volkswagen. Hann verður með hátæknilega, aflmikla en um leið sparneytna dísilvél með forþjöppu og nýjustu kynslóð samrásarinnsprautunar (TDI). Amarok verður með hagstæðari eldsneytisnýtingu og minni útlosun mengandi lofttegunda en áður hefur tíðkast í flokki pallbíla. Ráðgert er að Amarok verði fyrst settur á markað í Suður- og Mið-Ameríku vorið 2010 og í framhaldi af því í Rússlandi og Evrópu sem og Afríku og Ástralíu. Hann er væntanlegur á markað á Íslandi um mitt næsta ár.
Mest lesið Mango opnar í Kringlunni Viðskipti innlent Thule lækkar í prósentu Neytendur Má gefa börnunum sínum peninga? Viðskipti innlent Á bak við stórar framkvæmdir eru stórar vélar Samstarf Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar Viðskipti innlent Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Viðskipti innlent Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Viðskipti innlent Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar Viðskipti innlent Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Viðskipti innlent Fleiri fréttir Rukka ekki lengur foreldra fyrir að sitja við hlið barna sinna Olíuverð ekki verið lægra frá því árásirnar á Íran hófust Missir stöðu sína sem eini billjónamæringur heims Konungborinn Katari kaupir eina af bungabunga-höllum Berlusconi Vilja að Evrópa velji á milli loftslagsins og gervigreindarkapphlaupsins Olíuverð lækkar eftir fregnir af samkomulagi Samruni Paramount og Warner Bros samþykktur Heimsins fyrsti billjónamæringur Sögulegri skráningu SpaceX lokið Hefja rannsókn á Ryanair Fyrsta hækkun stýrivaxta í Evrópu síðan árið 2023 Rannsaka hvort Ryanair sé stætt á því að rukka foreldra fyrir að sitja með börnum sínum OpenAI setur einnig stefnuna á hlutafjárútboð Elkjøp fær milljónasekt fyrir persónuverndalagabrot Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Sjá meira