Ríkissjóður þarf að reiða út 37 milljarða 12. júní 2009 11:59
Niðurstaða útboða vikunnar er sú að ríkissjóður þarf samtals að reiða fram 37 milljarða kr. í reiðufé til fjárfesta í dag og á mánudag. Eru þar erlendir aðilar fyrirferðarmestir. Þetta kemur fram í umfjöllun greiningar Íslandsbanka í Morgunkorni sínu um útboð á ríkisbréfum í þessari viku. Þar segir að ríkissjóður hefur raunar töluvert borð fyrir báru hvað þetta varðar, enda námu nettóinnstæður ríkissjóðs og ríkisstofnana hjá Seðlabanka ríflega 180 milljörðum kr. í maílok. Veruleg óvissa ríkir nú um hvert þeir miklu fjármunir muni leita sem losna við gjalddaga ríkisbréfa, ríkisvíxla og innstæðubréfa það sem eftir lifir mánaðar. Í dag er lokagjalddagi ríkisbréfaflokksins RIKB 09 0612. Alls fá fjárfestar þá í hendur ríflega 100 milljarða kr. að meðtöldum vaxtagreiðslum, og þar af greiðir ríkissjóður tæplega 77 milljarða kr. Á mánudag er svo gjalddagi á ríkisvíxlum gefnum út í mars að upphæð 20 milljarða kr. Á móti voru gefin út ný ríkisbréf að upphæð u.þ.b. 46 milljarða kr. fyrr í þessari viku og svo víxlar fyrir 14 milljarða kr. í gær. Út af standa því um það bil 37 milljarðar kr. sem fjárfestar virðast ekki hafa áhuga á að endurfjárfesta í ríkispappírum að sinni. Greiningin telur það talsvert áhyggjuefni hvað erlendir fjárfestar virðast hafa verið áhugalitlir um kaup á ríkispappírum í vikunni. Ein skýring kann að vera sú að erlendar krónueignir séu að hluta til að skipta um hendur. Í maí voru til að mynda svokölluð jöklabréf á gjalddaga fyrir 18 milljarða kr. og í júní eru 14 milljarðar kr. á gjalddaga. Útgefendur þeirra bréfa hafa í töluverðum mæli fjárfest í ríkispappírum til að mæta greiðslum til eigenda bréfanna. Þegar dregur að gjalddaga innleysa þeir svo ríkispappírana og greiða krónurnar til endafjárfestanna. Þeir síðarnefndu eru hins vegar margir og smáir og hafa oft ekki bolmagn til annars en leggja krónur sínar inn á bankareikninga. Sé þetta staðan gæti það leitt til þess að lausafjárstaða innlendra banka verði enn rýmri en nú er og bil milli innlánsvaxta á millibankamarkaði og stýrivaxta aukist enn frekar. Að sama skapi verða þá færri um hituna á eftirspurnarhlið markaðar með ríkisbréf, sem gæti þrýst kröfu þeirra eitthvað upp á við.
Mest lesið Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Sjá meira