Sumarhugur virðist vera kominn í bílainnflytjendur 12. júní 2009 09:17
Sumarhugur virðist vera kominn í bílainnflytjendur, en samkvæmt tölum frá Umferðarstofu voru nýskráðar 177 bifreiðar í fyrstu vikunni í júní, samanborið við að nýskráðar voru 220 bifreiðar nettó í öllum maímánuði, en þá hefur verið tekið tillit til nýrra bifreiða sem bæði voru nýskráðar og afskráðar í mánuðinum. Þetta kemur fram í Hagssjá hagfræðideildar Landsbankans. Þar segir að hafa beri þó í huga að innflutningur bifreiða getur sveiflast mikið innan mánaðarins, þar sem hann kemur að megninu til sjóleiðina til landsins. Þessar nýskráningar eru þó sáralítill hluti af því mikla magni af bílum sem var nýskráð í hverjum mánuði fyrir hrun bankanna. Eins og sést hefur á hagtölum síðastliðna mánuði hefur innflutningur á ökutækjum nær lagst af hér á landi. Áætla má bifreiðainnflutning með því að skoða tölur um nýskráningar bifreiða. Töluverð árstíðarsveifla er á nýskráningum, en þrátt fyrir nærri tvöföldun á innflutningi bifreiða í maí samanborið við fyrri mánuð þá er árstíðarleiðrétt aukning einungis um 7%. Sömuleiðis eru nýskráningar bifreiða það sem af er ári einungis ríflega helmingur á við meðalmánuð sl. tvö ár. Bifreiðaeign Íslendinga hefur aukist hröðum skrefum síðastliðin ár en í lok árs 1994 voru 0,6 skráðar bifreiðar á hvern Íslending, 17 ára og eldri, en í lok árs 2008 átti hver Íslendingur, 17 ára og eldri, ríflega 1 bíl að meðaltali. Það ætti því að vera svigrúm til þess að draga verulega saman innflutning og kaup heimilanna á bifreiðum á næstunni án þess að þetta hlutfall nái lágum gildum í sögulegu samhengi.
Mest lesið „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Neytendur Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Viðskipti innlent Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Ósýnilegir múrar: „Ekki nóg að segja bara að fólk eigi að vinna saman“ Atvinnulíf Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Sjá meira