Viðskipti innlent

Saxhóll óskar eftir gjaldþrotaskiptum

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Saxhóll átti hlut í Smáralind. Mynd/ Anton.
Saxhóll átti hlut í Smáralind. Mynd/ Anton.
Eigendur einkahlutafélagsins Heiðarsólar ehf, sem áður hét Saxhóll ehf, óskaði í dag eftir því að félagið yrði tekið til gjaldþrotaskipta. Ein þekktasta eign Saxhóls var líklegast hlutur í Smáralind sem félagið átti í gegnum hlut sinn í Saxbygg.

Í tilkynningu frá Heiðarsól kemur fram að helstu eignir Heiðarsólar ehf. séu fólgnar í skuldabréfum, hlutabréfum og fasteignum, en auk þess hafi handbært fé félagsins um áramót verið umtalsvert eða á fjórða milljarð króna.

Í tilkynningunni segir jafnframt að starfsemi félagsins eigi sér langa sögu og eignir þess hafi verið umtalsverðar fyrir tíma nýliðinnar eignabólu. Eftir bankahrun hafi eigið fé félagsins enn verið jákvætt og vonir staðið til þess að hægt yrði bjarga rekstri þess.

„Í ljósi ábyrgða sem fallið hafa á félagið og afar neikvæðra rekstrarskilyrða, sem felast ekki síst í háum vöxtum og þröngri rekstrarstöðu fyrirtækja ásamt hríðfallandi virði verðbréfa, er því miður ekki hjá því komist að eigendur félagsins axli ábyrgð og óski eftir gjaldþrotaskiptum á félaginu. Enga skuldir eru í Heiðarsól ehf. aðrar en við viðskiptabanka Heiðarsólar. Megin ábyrgðir og skuldir eru við Nýja Landsbankann hf. og er ósk eigenda félagsins um gjaldþrotaskiptin gerð í fullu samráði við bankann og stærstu kröfuhafa. Það er nú í höndum skiptastjóra að ráðstafa eignum félagsins í þágu kröfuhafa," segir í tilkynningu frá eigendum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×