Sókn í vaxtamunaviðskipti gæti aflétt gjaldeyrishöftunum 15. apríl 2009 13:00
Sókn alþjóðlegra fjárfesta í vaxtamunaviðskipti á ný ásamt því að nokkuð miðar í endurreisn fjármálakerfisins eru þættir sem opna fyrir möguleikann á afnámi gjaldeyrishaftanna hér á landi. Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að þróunin undanfarið á erlendum fjármálamörkuðum hafi því verið jákvæð og vísbending um að skilyrði fyrir flot krónunnar kunni að skapast á næstu mánuðum. Hinir lágu vextir á Vesturlöndunum hafa leitt til þess ásóknar fjárfesta í hávaxtamyntir í t.d. í Brasilíu, Nýja Sjálandi og Ástralíu. Íslenska krónan var og er á meðal hávaxtamyntanna. Stýrivextir Seðlabankans eru 15,5% og afar háir í samanburði við þá vexti sem finnast nú í öðrum iðnríkjum, og reyndar einnig í samanburði við það sem finnst í nýmarkaðsríkjunum. Gjaldeyrishöft og hrun bankanna í fyrrahaust dæmdi krónuna hins vegar nær úr leik í vaxtamunaviðskiptum a.m.k. tímabundið. Hagtölur hafa verið að koma fram undanfarið sem benda til þess að það sé að draga úr samdrættinum á heimsvísu. Sé hér um raunverulega breytingu að ræða felst í því að áhættufælni er á undanhaldi og að ekki sé langt að bíða þess að alheimshagkerfið finni sér viðspyrnu í botninum og hagvöxtur glæðist á ný. Áhættan er hins vegar sú að hér sé ekki um annað að ræða en flökt í hagtölum og skammtímabjartsýni sem á sér lítinn raunverulegan grundvöll og að hagkerfi heimsins haldi áfram að dragast hratt saman á næstunni. Það myndi hvetja fjárfesta til að fjárfesta aftur í myntum sem mest viðskipti eru með, þ.e. dollara, jeni og evru, og þvinga seðlabanka hávaxtamynta að lækka vexti til að hvetja hagkerfi þeirra. Hávaxtamyntir eiga undir högg að sækja í slíku umhverfi og erfitt verður að fleyta krónunni við slík skilyrði.
Mest lesið Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Sjá meira