Gengi krónunnar að ná lægsta gildi ársins 8. október 2009 11:53
Gengi krónunnar hefur lækkað í morgun um 0,2% eftir að hafa lækkað í gær um 0,7%. Evran kostar nú 184,2 krónur og dollarinn 124,7 krónur. Lægst fór gengi krónunnar gagnvart evrunni á árinu 27. ágúst síðastliðinn í 184,9 krónur. Gengi krónunnar nú er því afar nálægt lágmarki sínu á árinu. Greining Íslandsbanka fjallar um krónuna í Morgunkorni sínu. Þar segir að veltan á millibankamarkaðinum með gjaldeyri þessa tvo daga hafi verið ágæt. Í gær var hún 4 milljónir evra en til viðmiðunar má nefna að í síðasta mánuði var meðal dagsveltan á þessum markaði 2,1 milljón evra og var það veltumesti mánuðurinn á þessum markaði frá því að hann var myndaður að nýju eftir hrun bankanna í fyrra. Í morgun hefur veltan verið 1 milljón evra. Erfitt er að greina nákvæmar ástæður lækkunarinnar þar sem þær eru háðar afar fáum viðskiptum. Þó má benda á ýmislegt í efnahagslegu umhverfi gjaldeyrismarkaðarins sem gæti verið að hvetja til lækkunar krónunnar þessa daganna og má þar nefna dráttur á lyktum Icesave samkomulagsins, erfiðleikar í stjórnarsamkomulaginu, óvissa á vinnumarkaði og minni afgangur af vöru- og þjónustujöfnuði í september en mánuðina á undan. Gegni krónunnar á aflandsmarkaði hefur verið að gefa nokkuð eftir síðustu daga eftir að hafa styrkst nokkuð seinnihluta september. Fór evran úr því að vera á 216 krónur niður í að kosta 190 krónur á tímabilinu frá 23. september fram til 30. september síðastliðinn. Síðustu viðskipti áttu sér hins vegar stað með evruna á 200 krónum á þeim markaði og hefur krónan því lækkað nokkuð aftur. Lækkun gengis krónunnar hefur því verið öllu meira á aflandsmarkaði undanfarna daga en innlendum markaði. Seðlabankinn hefur ekkert gripið inn í gjaldeyrismarkaðinn í þessum mánuði en bankinn hefur dregið umtalsvert úr inngripum sínum undanfarið. Þannig greip bankinn ekki nema tvisvar sinnum inn í markaðinn í síðasta mánuði eftir að hafa gripið sex sinnum inn í markaðinn í ágúst.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Sjá meira