Innlent

Segir bókfært tap vera 4 milljarðar króna

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Sigrún Elsa Smáradóttir borgarfulltrúi.
Sigrún Elsa Smáradóttir borgarfulltrúi.
Meirihlutinn í Reykjavík fór með rangt mál þegar virði Magma tilboðs var sagt 6,31. Niðurfærslur samkvæmt árshlutauppgjöri OR samsvara genginu 5,4 á hlut. Þetta segir Sigrún Elsa Smáradóttir, fulltrúi Samfylkingarinnar, í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur.

Sigrún segir að samkvæmt árshlutareikningi Orkuveitu Reykjavíkur stefni bókfært tap vegna viðskipta með bréf í HS Orku í 4 milljarða. Sigrún segir jafnframt að virði skuldabréfsins sem Magma gefur út sé ofáætlað þrátt fyrir þessa niðurfærslu.

Sigrún segir að þrátt fyrir þessa niðurfærslu sem sé þvert á fyrri yfirlýsingar meirihlutans um virði tilboðs Magma óttist hún að niðurfærslan sé of lág og virði Magma bréfsins sé enn lægra en gengið sé útfrá við þessa niðurfærslu. Búast megi við að málið verði skoðað aftur í lok árs þegar endanlegur ársreikningur OR liggi fyrir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×