Kippur í bílasölu ytra 11. desember 2009 06:00 Sala á nýjum bílum víða um heim hefur aukist upp á síðkastið. Fréttablaðið/AP
Sala á nýjum bílum hjá þýska bílaframleiðandanum Audi var 8,9 prósentum betri um allan heim í nóvember en á sama tíma í fyrra. Þetta kemur fram í gögnum fyrirtækisins í vikunni. Heildarsala á fyrstu ellefu mánuðum ársins dróst saman um 5,4 prósent milli ára. Svipuðu máli gegnir um aðra bílaframleiðendur en Bayerische Motoren Werke, sem framleiðir bíla undir merkjum BMW, segir bílasölu hafa aukist um tólf prósent frá í fyrra. Markaðir í Asíu hífa meðaltalið upp hjá báðum fyrirtækjum, ekki síst í Kína, en þar tvöfaldaði BMW söluna. Þá var salan góð á Indlandi, í Suður-Kóreu og í Singapore, auk Brasilíu og Kanada. Rúmlega hundrað prósenta aukning var í sölu á bílum undir merkjum Audi í Hong Kong. Stefan Bratzel, yfirmaður bílgreinarannsókna við vísindaháskólann í Bergisch Gladbach í Þýskalandi, segir í samtali við Bloomberg-fréttastofuna, að úr gögnum um bílasölu megi lesa að neytendur séu víða að nýta sér aðgerðir stjórnvalda sem eiga að leiða til þess að keyra hagkerfi heimsins upp úr kreppunni. Þótt kippur hafi komið í söluna kunni þetta að vera tímabundið ástand og geti dregið úr bílasölu fljótlega á næsta ári. Þó megi reikna með að Kína haldi meðaltalinu uppi eitthvað lengur.- jab
Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira