Vill ekki þurfa að horfa upp á Keflavíkurglottið 17. mars 2009 15:40 Magnús Gunnarsson kærir sig ekki um að tapa fyrir fyrrum félögum sínum í kvöld "
Við viljum auðvitað ekkert fara í sumarfrí um miðjan mars, svo það kemur ekkert annað til greina en að vinna í kvöld," sagði Magnús Gunnarsson leikmaður Njarðvíkur þegar Vísir náði tali af honum fyrir leik Njarðvíkur og Keflavíkur í kvöld. Grannliðin mætast öðru sinni í fyrstu umferðinni í Iceland Express deildinni í Njarðvík í kvöld þar sem Keflvíkingar geta tryggt sig í undanúrslitin eftir 96-88 sigur í fyrsta leiknum í Keflavík í fyrrakvöld. Magnús Gunnarsson þekkir Keflavíkurliðið vel eftir að hafa spilað með því um árabil og hann langar ekki að horfa framan í fyrrum félaga sína ef Njarðvíkurliðið tapar í kvöld. "Ég vil ekki horfa framan í smettið á þessum mönnum sem ég spilaði með öll þessi ár ef við töpum aftur og því verðum við að vinna tvo í röð. Nú veit ég hvernig andstæðingum okkar í Keflavík leið að horfa upp á glottið á okkur öll þessi ár," sagði Magnús í gamansömum tón. Hann segir Njarðvík eiga mikið inni fyrir leikinn í kvöld eftir að margt fór úrskeiðis hjá liðinu í fyrsta leiknum. "Þeir tóku miklu fleiri skot en við og við töpuðum 26 boltum, en samt unnu þeir okkur með svona litlum mun. Keflavík er með gott varnarlið en ekki svona gott. Við vorum bara of stífir og ég var allt of yfirspenntur í fyrsta leiknum. Þetta hefur aldrei komið fyrir mig áður og ég skil ekkert í þessu. Kannski var það bara af því ég var að spila á móti þessum strákum sem ég spilaði með öll þessi ár og gegn þjálfara sem ég ber mikla virðingu fyrir," sagði Magnús.
Dominos-deild karla Mest lesið Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Strippaði á Kópavogsvelli fyrir Bestu deildina Íslenski boltinn Hleypur aldrei aftur eftir hjartastopp Sport Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Enski boltinn Leikmenn beggja liða fá bönn eftir úrslitaleik HM Fótbolti Fjórtán ára undrabarn spilar með Þorsteini Leó Handbolti Sjáðu steinsofandi vörn Víkings í mikilvægasta einvígi tímabilsins Fótbolti Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Íslenski boltinn Aron Einar skoraði í fyrsta leik Fótbolti FH - Víkingur R | Nýta þær sér mistök meistaranna? Íslenski boltinn Fleiri fréttir Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjáðu tilþrif Berglindar úr úrslitaleiknum: Skoraði 46 meira en næsti leikmaður á EM Lakers selt fyrir metupphæð Berglind fékk Gullboltann Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Komust í 8-liða úrslit þrátt fyrir tap Fyrsti leikur LeBron með Sixers gegn meisturum Knicks Berglind langstiga- og framlagshæst á EM Sjá meira