Endurfjármögnun bankanna tilkynnt á mánudag 17. júlí 2009 09:52
Ráðgert er að ríkisstjórnin gefi út yfirlýsingu á mánudag þar sem grein verður gerð fyrir niðurstöðum samningaviðræðna og þá um leið hvernig staðið verður að endurfjármögnun bankanna. Lokafrestur sem Fjármálaeftirlitið gaf í málinu rennur hinsvegar út í dag. Í frétt frá fjármálaráðuneytinu um málið segir að samningar um endurskipulagningu bankanna séu nú á lokastigi og er stefnt að því að þeim verði í meginatriðum lokið innan tilsettra tímamarka, en unnið verður að endanlegum frágangi og miðlun upplýsinga til kröfuhafa allra næstu daga Undanfarnar vikur og mánuði hafa staðið yfir samningaviðræður milli fulltrúa stjórnvalda annars vegar, og skilanefnda gömlu bankanna f.h. kröfuhafa hins vegar, um endanleg fjárhagsskil milli gömlu og nýju bankanna. Í febrúar sl. ákvað ríkisstjórnin að fulltrúar þriggja ráðuneyta kæmu að viðræðunum fyrir hönd ríkisstjórnar, að fjármálaráðuneyti myndi leiða þær og að ráðnir yrðu erlendir ráðgjafar (breska ráðgjafafyrirtækið Hawkpoint) til að annast samningagerð fyrir hönd ríkisins. Þá réði fjármálaráðuneytið reyndan bankamann, Þorstein Þorsteinsson, til að hafa yfirumsjón með samningaviðræðunum. Á grundvelli neyðarlaganna sem sett voru í kjölfar hruns íslenska fjármálakerfisins í október voru innlendar eignir og skuldir gömlu bankanna fluttar yfir í nýju bankana og skuldbundu stjórnvöld sig til að tryggja að mismunur yfirfærðra eigna og skulda yrði bættur kröfuhöfum gömlu bankanna og að gætt yrði gagnsæis og sanngirni í því efni. Fjármálaeftirlitið lét meta yfirfærðar eignir og réði til þess endurskoðendafyrirtækið Deloitte og var matið vottað af ráðgjafarfyrirtækinu Oliver Wyman. Með því uppfylltu stjórnvöld þau fyrirheit sem m.a. voru veitt í viljayfirlýsingu til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í nóvember sl. Samkvæmt ákvörðun Fjármálaeftirlitsins var veittur frestur til 17. þ.m. til að ljúka samningum en fresturinn hafði áður verið framlengdur. Undirbúningur samninga hófst í mars sl., en eiginlegar viðræður hófust síðar. Þær hafa nú staðið sleitulaust síðustu vikur og daga og verið bæði viðkvæmar og flóknar. Stjórnvöld hafa kappkostað að tryggja hagsmuni Íslands í þessum viðræðum, um leið og fullrar sanngirni væri gætt gagnvart viðsemjendum, en þar er um ólíka aðila að ræða með mismunandi hagsmuni að því er segir í frétt ráðuneytisins.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Sjá meira