Telur óábyrgt að breiða út vantraust 2. október 2009 05:30 Dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur vísaði á miðvikudag frá kæru erlendra lánastofnana vegna yfirtöku á SPRON.Fréttablaðið/Valli
Það er afar óábyrgt af lögmanni erlendra lánastofnana að breiða það út til sinna umbjóðenda að íslenskir dómstólar séu ekki færir um að takast á við flókin álitaefni tengd hruninu, segir Guðmundur Ingvi Sigurðsson héraðsdómslögmaður. Þar vísar hann í viðtal við lögmann 25 erlendra lánastofnana sem stefndu ríkinu og ríkisstofnunum fyrir yfirtöku á SPRON sem birtist í Fréttablaðinu í gær. Lögmaður erlendu bankanna átaldi þar héraðsdóm fyrir að vísa málinu frá, og sagði það sýna vanmátt íslenskra dómstóla til að fást við mál tengd efnahagshruninu. Guðmundur, sem var lögmaður Seðlabankans í málinu, segir málið aldrei hafa komist á það stig að dómstóllinn hafi átt að úrskurða um þau flóknu álitaefni sem lögmaður stefnenda telji til. „Lög um meðferð einkamála segja fyrir um það sem koma þarf fram í stefnu. Ég benti dómara á það sem upp á vantaði og dómarinn tók undir það,“ segir Guðmundur. Málið hafi snúist um grundvallaratriði í lögfræði, ekki flókna samninga. Krafan hafi einfaldlega ekki verið rétt sett fram. „Það er mjög óábyrgt ef lögmaður stefnenda ætlar að halda því fram gagnvart umbjóðendum sínum að dómstólar hér kunni ekki neitt í lögfræði og rýra þannig orðspor dómstóla út á við. Slíkt er ekki til að bæta ásýnd landsins,“ segir Guðmundur. Sömu fjármálastofnanir hafi lánað öðrum íslenskum bönkum, og slíkar yfirlýsingar geti því haft bein áhrif á önnur mál sem þær fjármálastofnanir séu nú að vinna. Jóhannes Karl Sveinsson, lögmaður ríkisins og Fjármálaeftirlitsins í málinu, tekur undir þessi sjónarmið, og segir ummæli lögmanns stefnenda ómakleg og afar óvenjuleg. Hann tekur fram að hann hafi ekki krafist frávísunar, þótt það hafi verið niðurstaða dómsins.- bj
Mest lesið „Bílastæðið er fyrsta upplifun viðskiptavinarins“ Samstarf Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Viðskipti erlent Foreldrarnir byrja daginn á því að dansa og dilla sér Atvinnulíf Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Viðskipti innlent Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? Samstarf Spá enn vaxtahækkun í maí Viðskipti innlent Cayenne Electric kikkstartar nýjum rafbílakafla Porsche Samstarf Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Viðskipti innlent Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði Viðskipti innlent Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eimskip ákært fyrir sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Hvað á að gera við fermingarpeningana? Farþegum fjölgaði á milli ára í mars Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu „Vefveiðar eru ekki tæknivandamál, þær eru mannlegt vandamál“ Markaðurinn tók tíðindunum vel Töldu nauðsynlegt að taka stærra skref en lutu í lægra haldi Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Engar fækkanir fyrirhugaðar fari kaupin í gegn Gengið í Icelandair rýkur upp í kjölfar fregna af tilboði í Fly Play Europe Icelandair ræðir um kaup á dreggjum Play Samkaup eykur hlut sinn í Kjötkompaní Sjá meira