Viðskipti innlent

Mannvit með samning um verkefni vestan hafs

Verkfræðistofan Mannvit og alþjóðlega verkfræðifyrirtækið Technip hafa undirritað samstarfssamning um þróunarverkefni á sviði jarðhitanýtingar í Bandaríkjunum.

Í tilkynningu segir að markmið samstarfsins er að bjóða þeim sem standa að þróunarvinnu á sviði jarðhitanýtingar í Bandaríkjunum alla þjónustu hvað varðar ráðgjöf verkefnastjórnun, rannsóknir, boranir, hönnun og byggingastjórnun við uppbyggingu jarðvarmavirkjana.

Að sögn Runólfs Maack, aðstoðarforstjóra og yfirmanns erlendrar starfsemi Mannvits, opnar samningurinn leiðir fyrir Mannvit inn á þennan áhugaverða en jafnframt þróaða markað.

„Það hefur hvergi verið virkjað eins mikið af jarðhita í heiminum eins og í Bandaríkjunum. Þar er nú átak í gangi til að gera enn betur og því býður samstarfið upp á mikil sóknarfæri fyrir okkur," segir Runólfur.

Technip er leiðandi fyrirtæki á heimsvísu á sviði verkefnastjórnunar, hönnunar og byggingastjórnunar. Aðalstarfsemi fyrirtækisins er fyrir olíu- og gasiðnaðinn en með samstarfinu við Mannvit hyggst Technip hasla sér völl í jarðhitaiðnaðinum einnig.

Starfsmenn fyrirtækisins eru um 23.000 í 46 löndum í fimm heimsálfum, en Technip hyggst nota skrifstofu sína í Claremont, á Los Angeles svæðinu, fyrir uppbyggingu í jarðhitanum.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×