Exista fær 20 milljarða stefnu frá skilanefnd Kaupþings 9. október 2009 10:30
Exista hefur borist stefna frá skilanefnd Kaupþings banka hf. þar sem gerðar eru þær dómkröfur að Exista greiði bankanum samtals tæplega 20,1 milljarð króna vegna gjaldmiðlasamninga sem upphaflega voru gerðir við Kaupþing banka hf. Í tilkynningu til kauphallarinnar segir að skilanefnd Kaupþings banka hf. krefst einnig viðurkenningar á rétti til innstæðu á bankareikningi Exista í Nýja Kaupþingi banka hf. að fjárhæð tæplega 12,9 milljarða króna. Exista mun taka til varna í málinu enda telur félagið skilanefnd Kaupþings banka hf. ekki eiga rétt til innstæðu á bankareikningi félagsins hjá Nýja Kaupþingi. Þá telur Exista að félagið eigi kröfur á Kaupþing banka hf. á grundvelli gjaldmiðlasamninganna. Gjaldmiðlasamningarnir við Kaupþing banka hf. voru gerðir til að verjast gengissveiflum, meðal annars í íslensku krónunni, en Exista færði reikninga sína í evrum þar sem meirihluti eigna og skulda félagsins voru í erlendum gjaldmiðlum. "Þrátt fyrir að Exista hafi með þessum hætti leitast við að verja eigið fé sitt þá hafði lækkun krónunnar neikvæð áhrif á eigið fé Exista. Félagið hefur allt frá hruni íslenska fjármálakerfisins í október 2008 leitast við að ná samningum við skilanefnd Kaupþings banka hf. um uppgjör gagnkvæmra krafna en hefur ekki getað sótt rétt sinn fyrir dómstólum vegna ákvæða neyðarlaganna. Telur Exista því jákvætt að málið sé nú komið í þann farveg að niðurstaða fáist fyrir dómstólum um slíkt uppgjör," segir í tilkynningunni.
Mest lesið „Maður er reiður og sár“ Viðskipti innlent Verðhækkanirnar vonbrigði Viðskipti innlent Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf Uppsagnir fram undan og óttinn vex Atvinnulíf Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Viðskipti innlent Gert að afhenda kúnnanum nýjan eyrnahreinsi með myndavél Neytendur „Ég fæ oft kaffibolla í rúmið og svoleiðis stund er heilög!” Atvinnulíf Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Viðskipti innlent Þórunn og Svali til Íslandsbanka Viðskipti innlent „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Rakel nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Segir ríkar ástæður fyrir því að flugmenn eigi að vera vel launaðir Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum Sjá meira