Riftunarkostnaður innifalinn í 3,2 milljarða tapi 24. júní 2009 12:21 Hörður Arnarson, forstjóri Sjóvár.
Tryggingar almennings hækka ekki þrátt fyrir mikið tap Sjóvár á fjárfestingu í lúxusíbúðum. Tapið nemur 3,2 milljörðum og er riftunarkostnaður á samningu við kínverskan verktaka innifalinn í því tapi að sögn forstjóra félagsins. Eins og fram kemur í Morgunblaðinu í dag hafa Sjóvá-Almennar samið við kínverska verktakafyrirtækið Shun Tak um að rifta kaupsamningi um 68 lúxusíbúðir í háhýsi í Macau, í grennd við Hong Kong. Það var Milestone, sem átti Sjóvá, sem upphaflega samdi við Shun Tak fyrir tveimur árum. Samanlagt átti að greiða 100 milljónir dollara fyrir lúxusíbúðirnar, eða um 13 milljarða króna. Búið var að greiða um þriðjunginn af þeirri upphæð en restina, 70 milljónir dollara átti að greiða fyrir árslok. Með riftunarkostnaði þá tapar Sjóvá um 3,2 milljörðum króna á þessari fjárfestingu sem Hörður Arnarson, nýr forstjóri Sjóvár, segir hafa verið að fullu fært inn í ársuppgjör síðasta árs. Hörður sagði í samtali við fréttastofu nú fyrir hádegi að tryggingar almennings hjá Sjóvá hefðu ekki og myndu ekkert hækka vegna þessa taps. Hins vegar hafi allir hluthafar tapað sínum hlut. Nú sé unnið að stofnun nýs tryggingafélags Sjóvár - sem verði stofnað á næstu vikum - og verður tryggingahlutinn þá aðskilinn frá fjárfestingarhlutanum. Fleiri fjárfestingar á borð við lúxusíbúðirnar í Macau við Hong Kong eru ennþá inni í Sjóvá en þær verða skildar eftir í gamla félaginu sem mun eingöngu verða fjárfestingafélag. Hörður segir það varnarsigur að ná að losna undan þessum samningi og verið sé að selja íbúðirnar á um 75% af þeim kostnaði sem Sjóvá hafði lagt í fjárfestinguna. Það sé vel sloppið nú þegar erfitt sé að selja fasteignir um allan heim.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Sjá meira