Breytt skattlagning gæti kallað á skerðingu 24. júní 2009 04:00 Benedikt Jóhannesson
Engu breytir fyrir launþega hvort greiðslur í lífeyrissjóð eru skattlagðar við innlögn eða útgreiðslu. Leiðin, sem er tillaga þingflokks Sjálfstæðisflokks að leið til að auka tekjur ríkisins, hefur hins vegar bæði í för með sér kosti og galla, líkt og fram kemur í úttekt Benedikts Jóhannessonar tryggingastærðfræðings í efnahagsritinu Vísbendingu, sem hann bæði ritstýrir og gefur út. Áætlað hefur verið að tekjuaukning ríkissjóðs við breytinguna gæti numið fjörutíu milljörðum króna og segir Benedikt helsta kostinn fyrir launþega vera að skattheimtan sé sársaukalaus nú. „Að vísu flækir dæmið að breytingar geta orðið á skattkerfinu, en eins og nú horfir fer skattprósenta væntanlega ekki lækkandi á næstunni,“ segir í Vísbendingu. Einnig flækir málið að búa þyrfti til tvöfalt lífeyriskerfi, þannig að hætt yrði að greiða í það fyrra um leið og iðgjöld yrðu skattlögð við innlögn. Þá er vísað til útreikninga um að með tilfærslunni þurfi síðar að finna aðra skattstofna eða bregðast við með einhverjum hætti til að taka á þeirri skerðingu skattstofna sem á sér stað þegar greiðslur hefjast úr lífeyrissjóðunum þar sem skattur hefur þegar verið innheimtur. Þá er bent á að lífeyrissjóðirnir komi til með að hafa minna til að fjárfesta með og þar með aukist mismunun í lífeyrissjóðakerfinu, því réttindi opinberra starfsmanna séu tryggð, hvernig sem árar í ávöxtun sjóða þeirra, meðan aðrið sjóðir þurfi að skerða réttindi ef illa fer. Aukinheldur minnki möguleikar sjóðanna til að taka þátt í atvinnulífinu með því að fjárráð þeirra verða minni. Áhrif breytingarinnar gætu líka komið fram strax í að sjóðir sem ekki ættu fyrir skuldbindingum í gamla kerfinu þyrftu að skerða réttindi nú þegar. Benedikt segir ljóst að hugmyndin hafi bæði kosti og galla, en kreppuástandið hljóti að leiða til þess að skapandi hugmyndir sem þessi séu grandskoðaðar. „Ekkert bendir til þess að þessi hugmynd sé sett fram af loddarahætti eða sem lýðskrum,“ skrifar Benedikt. - óká
Mest lesið Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Sjá meira