Slitastjórn skipuð fyrir Kaupþing 25. maí 2009 15:37
Að beiðni skilanefndar Kaupþings hefur héraðsdómur Reykjavíkur skipað slitastjórn fyrir Kaupþing banka í samræmi við nýlegar breytingar á lögum um fjármálafyrirtæki. Slitastjórn Kaupþings skipa Ólafur Garðarsson, hrl. sem er aðstoðarmaður bankans í greiðslustöðvun, Davíð B. Gíslason, hdl. og Feldís L. Óskarsdóttir, hdl. „Með skipun slitastjórnar getur formlegt kröfulýsingarferli hafist en skilanefnd Kaupþings mun áfram sinna því hlutverki sínu að vernda eignasafn bankans til að tryggja að sem mest fáist upp í kröfurnar," segir Steinar Þór Guðgeirsson, formaður skilanefndar Kaupþings í tilkynningu um málið. „Skipun slitastjórnar breytir því ekki að bankinn getur enn farið í nauðasamninga þegar kröfulýsingarfrestinum lýkur." Slitastjórn tekur strax til starfa. Hún hefur heimild til að ákveða lengd kröfulýsingarfrestsins sem getur verið frá tveimur mánuðum og upp í sex mánuði. Fyrsta verk slitastjórnar verður að upplýsa um kröfulýsingarferlið og hvenær kröfuhafar muni geta lýst kröfum í Kaupþing banka innan þess frests sem ákveðinn verður. Nánari upplýsingar um kröfulýsingarferlið verða auglýstar og kynntar á upplýsingasíðu bankans, www.kaupthing.com. Slitastjórnin mun taka við kröfum, halda skrá um þær og taka afstöðu til þeirra. Ágreiningi um kröfur verður hins vegar vísað til dómstóla til umfjöllunar.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Sjá meira