Viðskipti innlent

Vísitala íbúðaverðs í borginni heldur áfram að lækka

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu var 309 stig í nóvember 2009 og lækkar um 1,5% frá fyrra mánuði. Síðastliðna 3 mánuði lækkaði vísitalan um 1,6%, síðastliðna 6 mánuði hefur hún lækkað um 1% og lækkun síðastliðna 12 mánuði var 11,1%.

Greint er frá þessu á vefsíðu Fasteignaskrár Íslands. Þar segir að vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir stærð og hvort það telst fjölbýli eða sérbýli. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 9 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 24 mánuði.

Tekið er fram á vefsíðunni að birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun fasteignaverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Fasteignaskrá Íslands áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði. Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×