Bókanir á víxl í hafnarstjórn vegna hótelbyggingar 12. maí 2009 11:15
Alls voru fjórar bókanir lagðar fram um fyrirhugaða hótelbyggingu á hafnarsvæðinu á síðasta stjórnarfundi hjá Faxaflóahöfnum. Í fundargerð segir að stjórn Faxaflóahafna sf. hafi móttekið erindi ABZ-A um lóð við Ægisgarð til að reisa á hótel. Ef niðurstaða skipulagsvinnu verður sú að slík bygging geti risið á reitnum eru Faxaflóahafnir sf. reiðubúnar að ræða við ABZ-A um áframhald málsins áður en rætt verður við aðra aðila um þessa uppbyggingu. Sá fyrirvari er gerður að hugmyndir ABZ-A falli að framtíðar skipulagi og að samkomulag náist um önnur nauðsynleg atriði svo sem verð lóðar, fjármögnun verkefnisins og framkvæmdatíma. Tillagan samþykkt en tveir sátu hjá við afgreiðslu málsins. Við þessa afgreiðslur lögðu fulltrúar Samfylkingar og Vinstri grænna í Reykjavík fram eftirfarandi bókun: "Fulltrúar Samfylkingar og Vinstri grænna telja ekki rétt að heimila viðræður um einstakar lóðir við gömlu höfnina í Reykjavík á meðan hugmyndasamkeppni um svæðið á sér stað. Um er að ræða eina dýrmætustu lóð í miðborg Reykjavíkur og vanda þarf sérstaklega vinnubrögð við úthlutun hennar. Því er undarlegt að veita vilyrði um forgang til viðræðna um uppbyggingu hótels áður en skipulagshugmyndir á lóðinni verða til. Það er von okkar að á þessu svæði verði myndarleg uppbygging í þágu borgar og borgarbúa." Þessu svöruðu fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í Reykjavík með því að bóka eftirfarandi: "Eitt mikilvægasta hlutverk stjórnmálamanna við núverandi aðstæður og 9% atvinnuleysi er að efla atvinnuuppbyggingu. Eins og fulltrúar Samfylkingar og Vinstri grænna í stjórn Faxaflóahafna ætti að vera kunnugt er iðulega gefið vilyrði fyrir lóðum hvort heldur er á vettvangi borgarinnar eða Faxaflóahafna. Ekki er verið að ganga svo langt að veita lóðarvilyrði með því að opna fyrir viðræður við ABZ-A. Fyrir liggur áhugi þessara aðila og vilji til að hefja uppbyggingu sem fyrst. Margt er þó enn ófrágengið hvað það varðar og því mikilvægt að gefa hafnarstjóra umboð til þess að ræða við ABZ-A um framhaldið. Það er gert án frekari skuldbindinga. Enn er ófrágengið með hvaða hætti umrædd lóð verður skipulögð. Hún er vissulega einstök og verður áhugavert að sjá hvaða tillögur munu koma varðandi nýtingu hennar í þeirri hugmyndasamkeppni sem senn mun hefjast." Aftur kom bókun hjá fulltrúaum Vinstri grænna og Samfylkingar í Reykjavík: "Slæmt atvinnuástand og alvarleg staða efnahagsmála getur ekki gefið afslátt á gagnsærri stjórnsýslu og jafnræði þegar kemur til lóðavilyrða á besta stað borgarinnar. Fulltrúar Samfylkingar og Vinstri grænna ítreka þann staðfasta vilja að á svæði gömlu hafnarinnar verði myndarleg uppbygging í þágu borgar og borgarbúa enda um að ræða eitt eftirsóknarverðasta byggingarland borgarinnar." Og að lokum létu fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í Reykjavík bóka: "Allt varðandi þetta mál hefur verið gagnsætt og uppi á borðinu og tillaga ABZ-A kynnt bæði stjórn Faxaflóahafna og skipulagsráði. Um þetta hefur m.a. verið fjallað á opinberum vettvangi. Málið kemur nú fyrir stjórn einmitt til þess að tryggja að stjórn sé þátttakandi á öllum stigum og sé upplýst um alla þætti þess. Langt er seilst að ýja að því að í þessu máli sé ekki stunduð gegnsæ stjórnsýsla og fyllsta jafnræðis gætt. Þá hafa viðkomandi stjórnarmenn ekki fylgst með gangi málsins."
Mest lesið Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Sjá meira