Baldur þarf sjálfur að bera kyrrsetninguna undir dómstóla Þorbjörn Þórðarson skrifar 19. nóvember 2009 13:04
Rannsókn á máli Baldurs Guðlaugssonar, fyrrverandi ráðuneytisstjóra, er langt komin. Baldur þarf sjálfur að bera ákvörðun um kyrrsetningu eigna sinna undir dómstóla vilji hann hnekkja henni. Baldur er hæst setti embættismaður Íslendinga sem hefur verið til rannsóknar af ákæruvaldi vegna gruns um brot.Baldur Guðlaugsson, fyrrverandi ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu, þarf sjálfur að að bera ágreining vegna kyrrsetningar á hluta hluta eigna sinna fyrir dómstóla til að fá henni hnekkt.Eins og fréttastofa Stöðvar 2 greindi frá á þriðjudag, fyrst fjölmiðla, kyrrsetti embætti sérstaks saksóknara hluta eigna Baldurs sem nemur söluandvirði hlutabréfa hans í Landsbankanum 17. september á síðasta ári.Grunur leikur á að Baldur, sem seldi hlutabréf fyrir á annað hundrað milljónir króna, hafi verið tímabundinn innherji í skilningi laga um verðbréfaviðskipti og því ekki mátt selja bréfin samkvæmt sömu lögum. Kyrrsetningin var gerð í síðustu viku þegar beiðni var send til Sýslumannsins í Reykjavík.Samkvæmt heimildum fréttastofu er rannsókn sérstaks saksóknara langt komin. Ef embættið tekur ákvörðun um að fella niður rannsókn á meintum innherjaviðskiptum Baldurs fellur kyrrsetningin sjálfkrafa úr gildi, en engar vísbendingar eru um að það sé uppi á teningnum. Með sama hætti fellur kyrrsetningin niður ef Baldur verður sýknaður með endanlegum dómi.Fram kemur í frétt Þórðar Snæs Júlíussonar í Viðskiptablaðinu í dag að embætti sérstaks saksóknara hafi þegar yfirheyrt Baldur og að hann sé jafnframt hæst setti embættismaður Íslendinga sem ákæruvald hafi rannsakað vegna gruns um brot.
Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira