Óbreyttir stýrivextir, traust vinnumarkaðarins brotið 22. september 2009 12:19 „
Öruggt er að peningastefnunefnd bankans mun ekki telja að forsendur hafi skapast fyrir lækkun vaxta niður fyrir tveggja stafa tölu en reikna má með því að nefndin sé að funda í dag og á morgun vegna vaxtaákvörðunarinnar." Þetta segir í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka í dag. Þar er fjallað um Stöðuleikasáttmálann og næstu vaxtaákvörðun peningastefnunefndar sem er á fimmtudag. Stýrivextir standa nú í 12%. Fram kemur í Morgunkorninu að ljóst sé að það traust sem aðilar vinnumarkaðarins lögðu á að stöðugleikasáttmálinn myndi skapa forsendur fyrir lækkun stýrivaxta Seðlabankans mun verða brotið. „Við teljum líklegt að nefndin ákveði að halda vöxtum bankans óbreyttum. Við teljum einnig líklegt að aðilum vinnumarkaðarins verði ekki að þeirri ósk sinni að vextir bankans lækki hratt á næstu mánuðum. Spáum við því að peningastefnunefnd Seðlabankans haldi stýrivöxtum sínum óbreyttum fram á annan ársfjórðung á næsta ári," segir greiningin. Í Stöðugleikasáttmálanum svokallaða sem gerður var á milli aðila vinnumarkaðarins og ríkisstjórnarinnar í lok júní síðastliðins segir að aðilar vinnumarkaðarins treysta því að með sáttmálanum skapist forsendur fyrir því að stýrivextir Seðlabanka Íslands lækki í eins stafs tölu fyrir 1. nóvember 2009, og að þeir og aðrir vextir bankans fari síðan áfram lækkandi. Aðilarnir leggja einnig áherslu á að til að örva hagkerfið, efla atvinnulífið og bæta stöðu heimilanna sé nauðsynlegt að vextir lækki hratt á næstu mánuðum og að vaxtamunur við útlönd verði ásættanlegur. Til þess að þetta markmið sáttmálans hefði gengið eftir hefði gengi krónunnar þurft að styrkjast allnokkuð frá því að sáttmálinn var gerður. Það er staða krónunnar sem peningastefnunefndin mun að öllum líkindum horfa mest á við ákvörðun sína í dag og á morgun, en krónan hefur gefið aðeins eftir frá því að sáttmálinn var gerður í sumar þrátt fyrir gjaldeyrishöft, umtalsverðan afgang af vöru- og þjónustujöfnuði og nokkur kaup Seðlabankans á krónum fyrir gjaldeyri á tímabilinu. Fyrir liggur að sá stöðugleiki á vinnumarkaði sem Stöðugleikasáttmálinn færði með sér var ekki nægur til fyrir peningastefnunefnd Seðlabankans til að lækka vexti. Fleira hefði þurft að koma til og má þar nefna ríkisábyrgð vegna Icesave, lánveitingar frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og hinum Norðurlöndunum og frágang efnahagsreikninga bankanna. Það er með aðgerðum sem tryggt hefðu sterkari krónu sem forsendur hefðu skapast fyrri lækkun vaxta Seðlabankans nú. Ljóst er að það hefur ekki tekist.
Mest lesið Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Viðskipti innlent Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Viðskipti erlent Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Viðskipti innlent „Bílastæðið er fyrsta upplifun viðskiptavinarins“ Samstarf Foreldrarnir byrja daginn á því að dansa og dilla sér Atvinnulíf Cayenne Electric kikkstartar nýjum rafbílakafla Porsche Samstarf Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? Samstarf Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Viðskipti innlent Spá enn vaxtahækkun í maí Viðskipti innlent Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Hvað á að gera við fermingarpeningana? Farþegum fjölgaði á milli ára í mars Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu „Vefveiðar eru ekki tæknivandamál, þær eru mannlegt vandamál“ Markaðurinn tók tíðindunum vel Töldu nauðsynlegt að taka stærra skref en lutu í lægra haldi Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Engar fækkanir fyrirhugaðar fari kaupin í gegn Gengið í Icelandair rýkur upp í kjölfar fregna af tilboði í Fly Play Europe Icelandair ræðir um kaup á dreggjum Play Samkaup eykur hlut sinn í Kjötkompaní Sjá meira